Stefnumótun fyrir ferðaþjónustuna – vinnustofur um allt land

Hafin er vinna við aðgerðabundna stefnumótun fyrir ferðaþjónustu á Íslandi til ársins 2025. Verkefnið er sameiginlegt verkefni Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytisins, Samtaka ferðaþjónustunnar, Sambands sveitarfélaga og Stjórnstöðvar ferðamála.

Opnar vinnustofur

Boðað er til opinnar vinnustofu í tengslum við stefnumótunina. Vinnustofan er opin öllum, og er mikilvægt að fá að borðinu alla hagsmunaaðila í ferðaþjónustunni grasrót, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Á vinnustofunni verða ræddar sviðsmyndir um þróun ferðaþjónustunnar til næstu ára og þær leiðir sem er mikilvægt að fara til að ná framtíðarsýn og leiðarljósi ferðaþjónustunnar um að vera leiðandi í sjálfbærni.

Vinnustofan er um þrjár klukkustundir. Unnið er í hópum að mismunandi meginmálefnum sem varða ávinning heimamanna, upplifun ferðamanna, verðmæta markaði, álagsstýringu og gæði áfangastaða, arðsemi og nýsköpum og loftslagsmál og orkuskipti.  Þátttakendur eru beðnir að skrá sig á vinnustofurnar hér: https://forms.gle/E5XTbuZvscRY21uq9 eða með því að smella á myndina.

Mikilvægt veganesti 

Afurð vinnustofanna er mikilvægt veganesti inn í stefnumótunina. Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að mæta og taka virkan þátt í umræðunum.

Vinnustofurnar eru haldnar sem hér segir:

  • Ísafjörður, Edinborgarhúsið – Þriðjudagur 26. nóvember kl. 13-16
  • Borgarnes, B59 Hótel – Fimmtudagur 28. nóvember kl. 13-16
  • Höfn, Hótel Höfn – Föstudagur 29. nóvember kl. 13-16
  • Egilsstaðir, Hótel Hérað – Miðvikudagur 4. desember kl. 15-18
  • Akureyri, menningarhúsið Hof – Fimmtudagur 5. desember kl. 13-16
  • Selfoss, Tryggvaskáli – Föstudagur 6. desember kl. 13-16
  • Reykjavík, Grand Hótel Reykjavík – Þriðjudagur 10. desember kl. 13-16

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …