Reglugerð um takmarkanir fyrir ferðamenn utan Schengen // Áhrif á ferðaþjónustu

Fyrr í dag gaf dómsmálaráðuneytið út reglugerð sem breytir gildandi reglugerð um för yfir landamæri. Breytingin hefur það í grundvallaratriðum í för með sér að útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, er tímabundið bannað að koma til landsins nema í tilteknum undantekningartilvikum.

Hætt er við að breytingin hafi töluverð áhrif á rétt íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja þegar kemur að afbókunum og kröfum til endurgreiðslu á þegar greiddum bókunargjöldum.

Samtök ferðaþjónustunnar vilja beina því til félagsmanna að þeir taki til skoðunar hvort það sé skynsamlegt fyrsta viðbragð við neikvæðum áhrifum breytingarinnar að bjóða ferðamönnum sem hyggjast afbóka ferðaþjónustu að færa bókun sína til og þá eftir atvikum innan tiltekins tímabils. Vera má að ýmsar aðrar ívilnanir til ferðamanna kunni að hafa áhrif á vilja þeirra til að sætta sig við slíkt fyrirkomulag.

Erfitt er að áætla áhrif breytingarinnar nákvæmlega í tilviki hvers og eins félagsmanns enda taka ferðaþjónustufyrirtæki sjálfstæðar ákvarðanir í viðskiptalegum málefnum. Þó má gróflega ætla að áhrifin geti orðið eftirfarandi:

Íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki hefur selt ferðamanni ferðaþjónustu í beinum viðskiptum (B2C)

  • Ef afbókun berst frá ferðamanni sem er búsettur í EES- og EFTA-ríkjunum hefur birting reglugerðarinnar engin áhrif á rétt ferðamannsins til afbókunar og endurgreiðslu. Um slík atriði fer eftir sem áður samkvæmt samningum íslenska ferðaþjónustufyrirtækisins við ferðamanninn.
  • Ef afbókun berst frá ferðamanni sem er búsettur utan EES- og EFTA-ríkjanna kann birting reglugerðarinnar að hafa áhrif á rétt ferðamannsins til afbókunar og endurgreiðslu. Um slík atriði fer í grundvallaratriðum eftir sem áður samkvæmt samningum íslenska ferðaþjónustufyrirtækisins við ferðamanninn eða eftir atvikum samkvæmt ákvæðum skilmála bókunarfyrirtækja sem íslensk ferðaþjónustufyrirtæki eiga í viðskiptum við.
  • Ef ekki er kveðið á um rétt til afbókunar og endurgreiðslu ferðaþjónustu í samningi milli ferðamanns og íslensks ferðaþjónustufyrirtækis fer um þann rétt samkvæmt almennum reglum um afpöntun , þ.e. að því gefnu að um samninginn fari samkvæmt íslenskum lögum.

o Almenna reglan er að ferðamaður sem hefur bókað ferðaþjónustu getur ekki afbókað hana án þess að baka sér jafnframt bótaskyldu og það jafnvel þó ferðaþjónustan hafi ekki þýðingu fyrir hann. Slík þóknun á jafnan að standa undir þeim kostnaði sem ferðaþjónustufyrirtækið situr uppi með.

o Hugsanlega kann heildarmat á aðstæðum beggja aðila að réttlæta afbókun án þess að bótaskylda myndist, þ.e.:

 Ef afbókun er gerð með nægum fyrirvara,
 ef þær forsendur sem liggja að baki afbókuninni eru fullnægjandi,
 ef um mikla hagsmuni er að ræða fyrir ferðamann sem afbókar, og
 íslenska ferðaþjónustufyrirtækið sem fær afpöntun getur forðað sér frá tjóni, t.d. með því að selja öðrum ferðaþjónustuna.

Íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki hefur selt ferðamanni pakkaferð

  • Ef íslensk ferðaþjónustufyrirtæki telst seljandi pakkaferða í skilningi laga sem um þau gilda mun birting reglugerðarinnar hafa þau áhrif að það verður að teljast nokkuð skýrt að réttur ferðamanns sem er búsettur utan EES- og EFTA-ríkjanna til fullrar endurgreiðslu sé orðinn virkur. Endurgreiðsla til ferðamanns á að eiga sér stað  innan 14 daga frá því að hann tilkynnir um afbókun.

Íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki hefur selt öðru ferðaþjónustufyrirtæki (innlendu eða erlendu) ferðaþjónustu til endursölu (B2B)

  • Ef afbókun berst frá öðru ferðaþjónustufyrirtækis vegna ferðamanns sem er búsettur í EES- og EFTA-ríkjunum hefur birting reglugerðarinnar í grundvallaratriðum engin áhrif á rétt fyrirtækisins til afbókunar og endurgreiðslu. Um slík atriði fer eftir sem áður samkvæmt samningum milli ferðaþjónustufyrirtækjanna.
  • Ef afbókun berst frá öðru ferðaþjónustufyrirtæki vegna ferðamanns sem er búsettur utan EES- og EFTA-ríkjanna ætti birting reglugerðarinnar jafnan ekki að hafa áhrif á rétt fyrirtækisins til afbókunar og endurgreiðslu. Félagsmönnum er rétt að ganga úr skugga um hvort og að hvaða leyti  breytingin horfir við ákvæðum í samningum milli ferðaþjónustufyrirtækjanna.
  • Ef ekki er kveðið á um afbókanir og endurgreiðslur í samningum milli fyrirtækjanna og um samningana fer samkvæmt íslenskum lögum fer um þann rétt samkvæmt almennum reglum um afpöntun.

o Almenna reglan er að fyrirtæki sem hefur bókað ferðaþjónustu hjá íslensku ferðaþjónustufyrirtæki getur ekki afbókað hana án þess að baka sér jafnframt bótaskyldu og það jafnvel þó ferðaþjónustan hafi ekki þýðingu fyrir hitt fyrirtækið. Slík þóknun á jafnan að standa undir þeim kostnaði sem íslenska ferðaþjónustufyrirtækið situr uppi með.

o Hugsanlega kann heildarmat á aðstæðum beggja aðila að réttlæta afbókun án þess að bótaskylda myndist

 Ef afbókun er gerð með nægum fyrirvara,
 ef þær forsendur sem liggja að baki afbókuninni eru fullnægjandi,
 ef um mikla hagsmuni er að ræða fyrir fyrirtækið sem afbókar, og
 íslenska ferðaþjónustufyrirtækið sem fær afpöntun getur forðað sér frá tjóni, t.d. með því að selja öðrum ferðaþjónustuna.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …