Umhverfisdagur atvinnulífsins 2020

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn rafrænt á miðvikudaginn 14. október 2020 frá 8.30-10.00.

  • Skráning fer fram HÉR.

Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samorka, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu. 

Í ár er viðburðinum eingöngu streymt rafrænt í opinni dagskrá á vef Samtaka atvinnulífsins, samfélagsmiðlum og fjölmiðlum. Dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til að verða 10.00.

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins í ár verða veitt fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verðlaun fyrir umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins.

DAGSKRÁ

  • Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir

Ávörp flytja: 

  • Halldór Benjamín Þorbergsson 
  • Kristín L. Árnadóttir, aðstoðarforstjóri LV 
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion 
  • Jónína G. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Terra 
  • Ari Edwald, forstjóri MS 

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir viðurkenningu fyrir umhverfisframtak ársins og til umhverfisfyrirtækis ársins. 

Þessir stjórnendur í íslensku atvinnulífi koma jafnframt fram í Sjónvarpi atvinnulífsins í tilefni af Umhverfisdegi atvinnulífsins: 

  • Arndís Soffía Sigurðardóttir
    Hótel Fljótshlíð – hótel án úrgangs 
  • Berglind Ósk Ólafsdóttir, BYKO
    Umhverfisvænar byggingavörur 
  • Bjarni Herrera, Circular Solutions
    Hringrásarhagkerfið 
  • Guðlaug Kristinsdóttir, Límtré
    Límtré úr íslenskum við 
  • Hafsteinn Helgason, EFLA
    Vindmyllur á Íslandi? 
  • Heiða Halldórsdóttir, Orkusalan
    Orkusala án kolefnisfótspors 
  • Jón Gestur Ólafsson, Höldur
    Umhverfisvænir bílaleigubílar. Hvað þarf til? 
  • Sigrún Hildur Jónsdóttir, Klappir
    Snjöll umhverfisstjórnun 
  • Sigurður Pétursson, Arctic Fish
    Umhverfisáskoranir fiskeldis

Við hlökkum til að sjá ykkur á Umhverfisdegi atvinnulífsins 2020 – að þessu sinni í Netheimum!

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …