Starfsafl

Starfsafl – meira en bara fræðslusjóður

Starfsafl er fræðslusjóður þeirra rekstraraðila / fyrirtækja sem eru með starfsfólk í Eflingu stéttarfélagi, Verkalýðsfélaginu Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis.

Starfsafl leggur metnað sinn í faglega og persónulega þjónustu. Hingað geta allir leitað sem eru með starfsfólk í áðurnefndum stéttafélögum og fengið upplýsingar um styrki, hvað er styrkhæft og mögulega styrkfjárhæð. Styrkir Starfsafls geta numið allt að 90% endurgreiðslu á reikningi og eru afgreiddir innan fimm virkra daga frá því að umsókn berst, ef öll tilskilin gögn fylgja. Sótt er um á www.attin.is

Hjá skrifstofu Starfafls er einnig hægt að fá gjaldfrjálsa aðstoð, ráðgjöf og stuðning við fræðslumálin, svo sem:

  • skoða hvaða leiðir eru færar fyrir þitt fyrirtæki
  • fá leiðbeiningar um leiðir í þarfagreiningu fræðslu
  • kynningu á eigin fræðslu fyrirtækja og stafrænni fræðslu
  • skipulagningu námskeiðs
  • uppsetningu fræðsluáætlunar
  • upplýsingagjöf um námskeið og fræðsluaðila
  • og annað það sem tengist fræðslu – og starfsþróunarmálum

Þá má finna eitt og annað gagnlegt á vef Starfsafls – upplýsingar um Fræðslustjóra að láni, ýmsar greinar og annað efni sem getur gagnast þeim sem vilja skoða sín fræðslu- og starfsþróunarmál.

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 510-7550 / 693-0097 eða með tölvupósti á lisbet@starfsafl.is

Tekið saman í október 2020.

Tengdar fréttir

Ný skýrsla Hagrannsókna um áhrif viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS) á íslenskt flug og ferðaþjónustu staðfestir það sem Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa …

Á dögunum fór fram fundur Nordisk Besöksnaring, samstarfsvettvangs norrænnar ferðaþjónustu, á Íslandi en þar tóku Samtök ferðaþjónustunnar á móti forsvarsmönnum ferðaþjónustusamtaka á …

Ný skýrsla SAF um samanburð á regluverki skammtímaleigu á Norðurlöndum sýnir að töluverður munur er á milli landanna þegar kemur að því …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á auknum fjölda vefveiðitilfella (e. phising) þar sem gestir fá skilaboð, m.a. í gegnum WhatsApp, SMS eða tölvupóst, …

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …