Jakob Frímann Magnússon hefur komið víða við á viðburðaríkum ferli. Hann er sannkallað athafnaskáld og hefur tónlistin alla tíð verið í forgrunni hjá honum. Síðustu ár hefur Jakob Frímann látið sig ferðaþjónustu varða og tekið þátt í að bæta og efla rekstrarumhverfi hótela og gististaða ásamt því að leiða áhugaverða og spennandi uppbyggingu á hóteli á suðausturhorni landsins. Þá á hann stóran þátt í að umhverfi tónlistarmanna hér á landi hefur batnað í áranna rás með öflugri hagsmunagæslu.
„Ég hef lagt mitt af mörkum í því að fínstilla umhverfi tónlistar- og listafólks og núna hef ég lagst á árar með ferðaþjónustunni í því að bæta umhverfið í greininni. Ég er bara með það eitt að markmiði – að ganga til góðs í hverju sem ég tek mér fyrir hendur,“ segir Jakob Frímann.
[powerpress]
Líkt og áður er Bakpokinn stútfullur af áhugaverðu efni – gríptu hann á spotify (https://spoti.fi/3iXkZ3E) og hlustaðu upp til agna!
