Bein útsending frá Nýársmálstofu 2021

Árleg nýársmálstofa Íslenska ferðaklasans, KPMG og Samtaka ferðaþjónustunnar fer fram þriðjudaginn 26. janúar kl. 9.00 þar sem sjónum verður beint að helstu áskorunum og tækifærum sem framundan eru í viðspyrnu ferðaþjónustunnar.

KPMG mun birta niðurstöður úr skoðanakönnun sem send var á fyrirtæki í ferðaþjónustu sem endurspeglar stöðu greinarinnar nú í upphafi árs. Þá mun Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri rýna í stöðu og framtíðarhorfur, mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir efnahag og mögulegar aðgerðir til skemmri og lengri tíma. Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustusviðs Icelandair Group og Knútur Rafn Ármann, framkvæmdastjóri Friðheima og handhafi hvatningaverðlauna Ábyrgrar ferðaþjónustu 2020 munu fara yfir tækifæri og áskoranir fyrirtækja sinna á í þeirri stöðu sem ferðaþjónustan er í.

Fylgstu með Nýársmálstofunni í beinni útsendingu:

Tengdar fréttir

Nýtt raunfærnimat fyrir leiðsögufólk er nú komið í boði á Íslandi. Með raunfærnimatinu gefst starfandi leiðsögumönnum tækifæri til að fá færni sína …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað inn umsögn um tillögu fjármála- og efnahagsráðherra til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í umsögninni gera SAF …

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …