Framkvæmdastjórar Samtaka atvinnulífsins og Samtaka ferðaþjónustunnar áttu í dag fund með lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins um ýmsa þætti er varða sóttvarnir á veitingahúsum á höfuðborgarsvæðinu, þær reglur sem gilda og eftirlit lögreglu með veitingastöðum.
Samtökin og Lögreglan eru sammála um að mikilvægt sé að sóttvarnir séu virtar, að reglur sem settar eru um þær á hverjum tíma séu skýrar fyrir bæði rekstraraðila og eftirlitsaðila og að meðalhófs sé gætt við eftirlit með reglunum.
Eftir breytingu á sóttvarnareglum frá og með 24. febrúar er skýrt að opnunartími veitingahúsa er til 22:00 og að gestir þurfi að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 23:00. Með breytingunni rýmkar opnunartími veitingastaða í þá átt sem samtökin og rekstraraðilar hafa lagt áherslu á, sem mun bæði hafa jákvæð áhrif á rekstur fyrirtækjanna og minnka líkur á árekstrum vegna opnunartíma.
Samtökin og Lögreglan munu áfram hafa samráð varðandi sóttvarnir og eftirlit með þeim eftir því sem þörf krefur.