
Formaður SAF
Það er ekki mörgu hægt að bæta við það sem sagt hefur verið og skrifað um þær hamfarir sem dunið á ferðaþjónustunni undanfarin tvö ár. Þetta tímabil hefur einkennst af stöðugri baráttu, hæðum og lægðum, vonum og vonbrigðum, svartsýni á köflum, en þó miklu oftar bjartsýni. Með hana að vopni, höldum við nú inn í nýtt ár, sem við vonum og trúum að muni marka einhverskonar endalok þessa dimma tíma í sögu ferðaþjónustunnar.
Við þráum öll að geta haldið áfram. Fá tækifæri til að byggja fyrirtækin okkar upp að nýju, styrkja og bæta rekstur þeirra og laga að breyttum aðstæðum og kröfum framtíðarinnar.
Frá því að faraldurinn skall á hefur nær allur tími, hugarafl og orka Samtaka ferðaþjónustunnar farið í viðbrögð og ýmis önnur verkefni tengd faraldrinum og þeim aðstæðum sem hafa skapast hverju sinni. Þegar þetta er skrifað er þeim verkum ekki lokið. Faraldurinn er nú í hæstu hæðum og enn óvissa um það hvaða afleiðingar Omicron afbrigði kórónuveirunnar mun hafa á samfélög þjóða og þar með á sóttvarnarráðstafanir og ferðatakmarkanir. Ef allt fer á slæman veg, þá er ljóst að það rennir stoðum undir þá skoðun okkar að framlengja þurfi ýmis úrræði ríkisstjórnarinnar, eins og til dæmis átakið „Hefjum störf“, hlutabótaleið og viðspyrnustyrki. Skuldavandi greinarinnar er síðan annað mál, sem krefst úrlausnar.
Það verður hins vegar ánægjulegt, þegar Samtök ferðaþjónustunnar geta tekið upp þráðinn síðan í mars 2020 og haldið áfram að sinna af krafti sínum „venjulegu“ málum. Þau snúast í grunninn um það að vinna að hagsmunum greinarinnar í stóru samhengi, á öllum vígstöðvum. Þar bíða mörg verkefni og stór hagsmunamál sem beðið hafa á hliðarlínunni – en skipta gríðarlegu máli í viðspyrnunni sem framundan er.
Undirrituð hefur nú í tæp fjögur ár verið formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Þessi tími hefur liðið á ógnarhraða og að sjálfsögðu þróast með allt öðrum hætti, en áætlað var. Hann verið gríðarlega lærdómsríkur og gefandi, þrátt fyrir allt. Eins og fyrr segir eru mörg verkefni sem hafa verið mér hjartans mál, enn í vinnslu og margt nýtt á sjóndeildarhringnum. Ekki hefur heldur dregið úr ástríðu minni og brennandi áhuga á málefnum ferðaþjónustunnar – heldur þvert á móti.
Ég hef því ákveðið að gefa kost á mér til áframhaldandi starfa sem formaður á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar, sem haldinn verður 23. mars 2022 og vonast eftir trausti ykkar og stuðningi.
Um leið og ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs, þá þakka ég ykkur kærlega fyrir samstarfið og innblásturinn. Máttarstólpar ferðaþjónustunnar búa yfir miklum krafti, seiglu og aðdáunarverðu æðruleysi. Það eru eiginleikar, sem munu áfram nýtast vel og verður nú vonandi hægt að beina í farveg viðspyrnu og endurreisnar.

Bjarnheiður Hallsdóttir,
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar