Hringferð SA 2022: Fyrirtækin okkar og framtíðin

Í maí funda Samtök atvinnulífsins með félagsmönnum samtakanna um allt land. Á fundunum verður rætt um efnahagsmálin, komandi kjaraviðræður og það sem helst brennur á forsvarsmönnum fyrirtækja.

Fundirnir verða tvískiptir. Í fyrri hluta fundanna förum við yfir efnahagsmálin og fáum innlegg félagsmanna í komandi kjaraviðræður. Auk þess verður vinna fulltrúaráðs SA í aðdraganda kjarasamninga kynnt.

Seinni hluti fundanna er í formi fræðslu á vegum sérfræðinga vinnumarkaðssviðs SA þar sem starfsmanna- og kjaramál verða rædd.

Eru félagsmenn í Samtökum ferðaþjónustunnar hvattir til að mæta á fundina.

Skráning á fundina er hafin á SA.is og við vonumst til að sjá sem flesta.

Dagskrá hringferðarinnar:

  • 31. maí – Reykjavík – Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …