Brú að bættum lífskjörum

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS og Guðbjörg Kristmundsdóttir, varaformaður SGS, handsala brú að bættum lífskjörum.

Laugardaginn 3. desember var skammtímakjarasamningur undirritaður milli SA og SGS. Markmið samningsins er að styðja við kaupmátt launafólks og brúa bil yfir í nýjan langtímasamning í anda Lífskjarasamningsins. Þar var áhersla lögð á að tryggja efnahagslega velsæld og aukna verðmætasköpun, bæta lífskjör og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta.

Meginviðfangsefnið er að verja þann árangur sem náðst hefur á liðnum árum og tryggja grundvöll áframhaldandi lífskjarabata á komandi misserum.

Í ljósi krefjandi efnahagslegra aðstæðna, sem einkum hafa einkennst af mikilli verðbólgu og vaxtahækkunum, er mikilvægt að samningar aðila vinnumarkaðarins hafi þau skýru markmið að styðja við kaupmátt og að jafnvægi náist sem fyrst í hagkerfinu.

Með áherslu á að verja kaupmátt í samningi til skamms tíma er það ásetningur samningsaðila að skapa fyrirsjáanleika á miklum óvissutímum – fjölskyldum og fyrirtækjum til hagsbóta.

Hluti af samkomulagi aðila er tímasett viðræðuáætlun sem er ætlað að láta samning taka við af samningi og tryggja með því samfellu milli Lífskjarasamningsins frá 2019 og nýs langtímasamnings. Í því felst mikilvægt framlag til að stuðla að efnahagslegum stöðugleika.

Aðilar hafa komið sér saman um þau meginatriði sem horfa þarf til við þá vinnu og sammælst um að þegar verði hafist handa við undirbúning þeirra viðræðna. Markmiðið er að tryggja áframhaldandi kaupmáttaraukningu launafólks þegar óvissutímabili lýkur og að samningur taki við af samningi.

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …