Aukinn stuðningur til öryggismála og slysavarna ferðamanna

Frá undirskrift samningsins. Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála og Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

Á dögunum skrifaði Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra skrifaði í dag undir samning við Slysavarnarfélagið Landsbjörg og Samtök ferðaþjónustunnar um áframhaldandi stuðning til öryggismála og slysavarna ferðamanna undir merkjum „Safetravel“ verkefnisins.

Undanfarin ár hefur ráðuneyti ferðamála gert samning við Slysavarnafélagið Landsbjörgu og Samtök ferðaþjónustunnar um eflingu öryggismála og slysavarna ferðamanna með því að skapa gott aðgengi fyrir ferðamenn og ferðaþjónustuaðila að upplýsingum um ábyrga ferðahegðun, umgengni um náttúru og aðstæður í landinu.

Að þessu sinni verður 40 m.kr. varið til verkefnisins, sem er ætlað að tryggja því fjárhagslegan grundvöll og jafnframt skapa svigrúm til að auka umfang verkefna frá því sem verið hefur.

Mikil fjölgun ferðamanna til Íslands á undanförnum árum hefur skapað margvíslegar áskoranir varðandi öryggi þeirra og slysavarnir og er því um að ræða hækkun á framlagi menningar- og viðskiptaráðuneytisins til verkefnisins.

„Safetravel verkefnið hefur skipt sköpum í því að stuðla að auknu öryggi ferðamanna og vil ég þakka Landsbjörgu sérstaklega fyrir árangursríkt starf.Ferðaþjónustan hefur einnig lagt mikið af mörkum í því að bæta öryggismálin. Við viljum að allir geti notið ferðalagsins á Íslandi á öruggan hátt,” segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

Meðal þess sem samningurinn tekur til er:

  • Þróun og rekstur heimasíðunnar safetravel.is og innsetning viðvarana þegar þörf er á fyrir ferðamenn og ferðaþjónustuaðila.
  • Þróun og rekstur skjáupplýsingakerfis ferðamanna á lykilstöðum um allt land.
  • Útgáfa, dreifing og uppsetning á öðru fræðsluefni til ferðamanna.
  • Þróun og vinna við aksturhluta safetravel forritsins.
  • Þróun á ökuprófum fyrir erlenda ferðamenn inn á vef safetravel.is.
  • Fræðsla til starfsmanna í ferðaþjónustu, m.a. með námskeiðum um árangursríka upplýsingagjöf.
  • Heilsársviðvera í stafrænni upplýsingamiðstöð á vef safetravel.is þar sem m.a. er safnað upplýsingum um aðstæður á ferðamannastöðum víða um landið og þeim miðlað áfram með upplýsingakerfum safetravel.is.
  • Hálendisvakt björgunarsveitanna.

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …