Aðalfundur 2023: Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fer fram fimmtudaginn 30. mars 2023 á Fosshótel í Stykkishólmi.

Samkvæmt lögum SAF skal stjórn samtakanna skipa kjörnefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna.

Í kjörnefnd sitja:

Kjörnefnd auglýsir hér með eftir framboðum til stjórnar SAF fyrir starfsárin 2023 – 2025. Samkvæmt lögum SAF skal stjórnarkjöri þannig háttað að annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri.

Að þessu sinni eru 3 meðstjórnendur í kjöri. Ekki er um formannskjör að ræða. Þeir tveir frambjóðendur til stjórnar sem ekki hljóta kosningu, en næstir koma þeim sem ná kjöri, teljast varamenn í stjórn til eins árs fram að næsta aðalfundi.

Framboð til embætta meðstjórnenda skulu hafa borist kjörnefnd skriflega eða rafrænt 14 dögum fyrir aðalfund, eða fimmtudaginn 16. mars 2023.

  • Hægt er að senda framboð á netfangið saf@saf.is eða á kjörnefndarmenn beint, en netföng þeirra eru hér að ofan.

Samkvæmt lögum SAF ber kjörnefnd að tilkynna félagsmönnum tillögur sínar í síðasta lagi sjö dögum fyrir aðalfund, eða fimmtudaginn 23. mars 2023.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Íslensk ferðaþjónusta setti svip á World Travel Market (WTM) sem fór fram í ExCeL-sýningarhöllinni í London dagana 3.–5. nóvember. Fulltrúar SAF sóttu …

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …