Skattspor íslenskrar ferðaþjónustu var um 140 milljarðar króna árið 2022

Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2024 var lagt fyrir Alþingi og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) skiluðu inn umsögn um frumvarpið.

Skattspor íslenskrar ferðaþjónustu var um 140 milljarðar króna árið 2022

Hraður viðsnúningur íslensk efnahagslífs frá þeim hremmingum sem fylgdu heimsfaraldi ættu ekki að hafa falist fyrir neinum. Ummerkin sjást víða og hefur efnahagsframvindan sem og aukinn vaxtarþróttur hagkerfisins gjörbreytt horfum í ríkisfjármálum, langt umfram væntingar. Þar hefur ferðaþjónusta spilað lykilhlutverk. Í umsögn sinni benda SAF á að skattspor íslenskrar ferðaþjónustu sé nú þegar verulegt.

„SAF fengu ráðgjafarfyrirtækin Reykjavík Economics og Intellecon til liðs við sig að reikna út skattspor ferðaþjónustu og liggja bráðabirgðaniðurstöður fyrir. Þar kemur í Ijós að skattspor íslenskrar ferðaþjónustu var um 140 milljarðar króna árið 2022.“

Úr umsögn SAF.

Í umsögninni leggst SAF gegn boðuðum áformum um auknar álögur á ferðaþjónustu og telja að stíga verði varfærin og vel ígrunduð skref þegar kemur að ákvörðunum um breytt gjalda- og skattaumhverfi ferðaþjónustu. Skattar og gjöld hafa áhrif á hegðun fólks og fyrirtækja og alls ekki öruggt að skattahækkanir auki tekjur ríkissjóðs og þá er mikilvægt að innlendri ferðaþjónustu sé gefið andrými til sjálfbærs vaxtar.

SAF leggja til afnám gistináttaskatts

Gistináttaskattur brenglar samkeppnisstöðu gististaða á innlendum mörkuðum, skerðir samkeppnishæfni áfangastaðarins á alþjóðamörkuðum og myndar skattstofn til virðisaukaskatts. Gistináttaskattur nær hvorki til sölu gistingar sem ekki ber virðisaukaskatt, líkt og heimagistingar, né skemmtiferðaskipa. Þá er skatturinn ekki innheimtur á öðrum Norðurlöndum. SAF leggja því til afnám gistináttaskatts, líkt og í fyrri umsögnum. Þegar kemur að áætluðum breytingum á skattinum ítreka SAF í umsögninni:

„Þá er betur heima setið en af stað farið með áformaðar breytingar á gistináttaskatt þar sem þær eru til þess fallnar að auka enn frekar á óhagræði skattsins. SAF ítreka að 12-18 mánaða fyrirvari á hækkun skatta og gjalda er nauðsynlegur vegna eðlis greinarinnar.“

Úr umsögn SAF.

Að mati SAF er það óheppilegt að aukin skattheimta á ferðaþjónustu sé lögð til í frumvarpi um fjárlög fyrir árið 2024 á sama tíma og vinna við útfærslu tillagna að aðgerðum í aðgerðaáætlun fyrir ferðamálastefnu til 2030 stendur yfir. SAF hvetja fjárlaganefnd og þingmenn til að kynna sér vel fyrrgreinda vinnu við aðgerðaáætlun um ferðaþjónustu til 2030, þar sem meðal annars verða lagðar fram tillögur að heilbrigðara rekstrarumhverfi ferðaþjónustu og fyrirkomulagi gjaldtöku til framtíðar.

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …