Takk konur!

Í tilefni af kvennafrídeginum 2023 var Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, í viðtali á Turisti.is um stöðu kvenna í íslenskri ferðaþjónustu. Þar rifjar Bjarnheiður upp hvernig tíðarandinn hefur meðal annars breyst til hins betra í atvinnugreininni:

„Þegar ég hóf störf í ferðaþjónustu fyrir um 30 árum, þá var hún karlaveldi – hvernig sem á hana var litið. Henni var stjórnað af körlum að langmestu leyti og þeir opinberu starfsmenn, sem höfðu með málefni hennar að gera, voru líka karlar. Þetta hefur gjörbreyst. Að vísu eru ekki margar konur sem stýra allra stærstu fyrirtækjum greinarinnar (frekar en í öðrum atvinnugreinum) en þær eru óteljandi, þegar kemur að litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sem eru mörg í eigu kvenna og stýrt af þeim. Konur eru sömuleiðis mjög áberandi í stöðum millistjórnenda í ferðaþjónustu, í öllum greinum hennar.“

Samtök ferðaþjónustunnar styðja heilshugar og hafa lengi beitt sér fyrir jafnfrétti á vinnumarkaði. Formaður SAF, og varaformaður Samtaka atvinnulífsins, er kona. Í stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar sitja 4 konur og 3 karlar. Þá hafa síðustu þrír ráðherrar málaflokksins verið konur, og forstöðumenn ýmissa stofnana sem snerta ferðaþjónustu eru konur. Bjarnheiður segir þar að auki:

„Konur hafa því mikil áhrif innan greinarinnar og almennt er mikill vilji til dæmis innan SAF að konur gegni þar áhrifastöðum, a.m.k. til jafns við karla.“

SAF óska konum og kvárum til hamingju með daginn.

Tengdar fréttir

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti …