Samtök ferðaþjónustunnar hafa ráðið Maríu Rut Ágústsdóttur í stöðu verkefnastjóra hjá samtökunum. Hún hefur þegar hafið störf hjá SAF.
María Rut er með B.A. gráðu í alþjóðlegri þjónustustjórnun og gestrisni frá Copenhagen Business Academy. Þá stundar hún meistaranám í ferðamálafræði við Aalborg University
María Rut hefur víðtæka starfsreynslu úr ferðaþjónustu. Hún hefur starfað sem móttökustjóri og þjónn á hótelum og veitingastöðum hér á landi og í Danmörku ásamt því að hafa starfað sem hótelstjóri á Magma hótel. Þá hefur María Rut starfað sem ferðaráðgjafi hjá Whats On og við bókun og bakvinnslu hjá Nordic Visitor.
„Það er mikill fengur fyrir SAF að fá að njóta starfskrafta Maríu Rutar áfram, en hún hefur verið í starfsnámi hjá okkur frá því í haust. Með ráðningu Maríu Rutar eru samtökin að eflast og liðsheildin á skrifstofunni verður enn sterkari,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
„Það hefur verið lærdómsríkt og skemmtilegt að kynnast starfsemi SAF síðastliðna mánuði. Ég hlakka til að takast á við nýjar áskoranir og að starfa með frábærum hópi á skrifstofu samtakanna við að efla íslenska ferðaþjónustu,“ segir María Rut.
Samtök ferðaþjónustunnar eru heildarsamtök fyrirtækja í ferðaþjónustu á Íslandi. Samtökin eru stofnuð árið 1998 og eru aðilar að Samtökum atvinnulífsins. Um 400 fyrirtæki í ferðaþjónustu um land allt eru aðilar að SAF.