Vinnu við aðgerðaáætlun um ferðaþjónustu til 2030 senn að ljúka

Nú sígur á seinni hluta vinnu við aðgerðaáætlun um ferðaþjónustu til 2030, sem staðið hefur yfir frá því í maí og SAF hefur tekið þátt í ásamt fulltrúum ríkis og sveitarfélaga.

Vinnuhóparnir sjö skiluðu drögum að tillögum til stýrihóps verkefnisins þann 15. janúar og stýrihópurinn vinnur nú að samræmingu og yddun aðgerða sem til stendur að verði skilað til ráðherra þann 15. febrúar.

Stefnt er að því að ráðherra leggi tillögu að þingsályktun um stefnu og aðgerðaáætlun um ferðaþjónustu til 2030 fyrir Alþingi fyrir mánaðarmótin febrúar/mars.

Á vef stjórnarráðsins má finna nánari upplýsingar um verkefnið, stefnurammann sem það byggir á, tímalínu verkefnisins, þátttakendur og skipulag: https://www.stjornarradid.is/verkefni/atvinnuvegir/ferdathjonusta/ferdamalastefna/

Drög að tillögum frá vinnuhópunum voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember síðastliðnum. Þar voru drögin að tillögum sett fram í einu skjali, en bæði drögin og umsagnir um þau má skoða hér:  https://island.is/samradsgatt/mal/3591

Við bendum aðildarfyrirtækjum SAF á að nú á næstu sjö dögum eru síðustu forvöð að koma ábendingum og gagnrýni til stýrihóps og ráðuneytisins.

Við hvetjum fyrirtæki því sérstaklega til að kynna sér vel þau drög sem hafa verið birt og koma til okkar ábendingum og rýni. Fyrst og fremst er mikilvægt að fá sjónarmið fram um tvennt, annars vegar hvort fyrirtækjum virðist eitthvað í tillögunum óþarft eða atvinnugreininni lítt til framdráttar, og hins vegar hvort fyrirtækjum þykir einhverjar aðgerðir vanta í drögin sem koma þurfi að. Ábendingum má koma til SAF á póstfangið saf@saf.is eða senda inn í þar til gerð form á vefsíðu verkefnisins á stjórnarráðsvefnum.

Til að auðveldara sé að átta sig á því hverjar tillögurnar eru og hvað felst í þeim hafa þær verið settar upp í PowerBI form. Við hvetjum aðildarfyrirtæki SAF til að kynna sér tillögurnar þar.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …