Ferðaþjónustudagurinn 2024

Ferðaþjónustudagurinn 2024 verður haldinn í Hörpu mánudaginn 7. október undir yfirskriftinni „Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum“. Ráðstefnan fer fram í Silfurbergi og hefst kl. 9.00 og stendur til 16.30.

Nánari upplýsingar um fyrirlesara og dagskrá er að finna á vef ráðstefnunnar (htttps://saf.is/ferdathjonustudagurinn-2024)

Samtök ferðaþjónustunnar standa að þessu sinni að Ferðaþjónustudeginum í samstarfi við Ferðamálastofu, Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarð og Þingvallaþjóðgarð.

Álagsstýring – áskoranir og tækifæri

Á ráðstefnunni verður fjallað um álagsstýringu á fjölsóttum ferðamannastöðum þar sem sjónum verður meðal annars beint að áskorunum og reynslu hér á landi sem erlendis og samtali stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um þetta mikilvæga viðfangsefni. Þá verður jafnframt horft til nýsamþykktrar ferðamálastefnu í þessu samhengi sem leggur áherslu á þrjár víddir sjálfbærnihugtaksins – efnahag, samfélag og umhverfi.

Erlendir og innlendir fyrirlestrar ásamt umræðum

Tim Bamford frá Department of Conservation (DOC) í Nýja Sjálandi, Chris Taylor frá VisitScotland og Dr. Susan Sidder frá National Park Service í Bandaríkjunum munu segja frá skipulagi álagsstýringar á ferðamannastöðum í þessum þremur löndum, rýna í raundæmi og fjalla um reynslu af útfærslu og framkvæmd stýringar á álagi í samhengi við ávinning og áskoranir ferðaþjónustufyrirtækja.

Meðal annarra þátttakenda í ráðstefnunni verða Einar Á. E. Sæmundsen frá Þingvallaþjóðgarði, Ingibjörg Halldórsdóttir frá Vatnajökulsþjóðgarði, Inga Dóra Hrólfsdóttir frá Umhverfisstofnun og Ragnar Árnason frá Háskóla Íslands, ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfisráðherra og Lilju Dögg Alfreðsdóttur ferðamálaráðherra.

Takið mánudaginn 7. október frá!

Nánari upplýsingar um dagskrá og miðasölu verða kynntar í byrjun september.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Tengdar fréttir

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Faghópafundir aðalfundar verða haldnir fyrir hádegi og formlegur aðalfundur …

Hvernig upplifa gestir „gæði“ í dag og hvernig er hægt að endurspegla það í daglegu verklagi? Hvað skiptir þá mestu máli þegar kemur að upplýsingum, væntingum og þjónustu? Þessum spurningum verður svarað á …

Samtök ferðaþjónustunnar óska eftir þátttöku ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi í könnun um sjálfbærni-, gæða- og umhverfisvottanir í greininni. Sjálfbærni, umhverfismál og gæði hafa …

Menntadagur atvinnulífsins 2026 fer fram miðvikudaginn 11. febrúar kl. 13:00-16:00 á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni „Framtíðin kallar. Er menntakerfið að hlusta?“ …

Hópmálsókn evrópskra hótela gegn Booking.com hefur nú verið lögð formlega fram fyrir dómstól í Amsterdam. Málið snýr að kröfum um skaðabætur vegna …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Skráning á aðalfundinn og nánari dagskrá verður kynnt er nær …