Staðreyndir um ferðaþjónustu og lífskjör

Kosningar 2024 Lífskjör Erlent starfsfólk Húsnæðisverð Verðbólga Virðisaukaskattur ítarefni


Ferðaþjónusta er mikilvæg undirstaða lífskjara fólks

Af stjórnmálaumræðunni mætti ráða að ferðaþjónusta sé sérstök orsök margvíslegs vanda í samfélaginu og að það væri jákvætt fyrir almenning í landinu að minnka verðmætasköpun ferðaþjónustu, jafnvel með beinum aðgerðum. 

Það er hins vegar ekki rétt.

Opinber gögn um framlag ferðaþjónustu til efnahagslífs og lífskjara á Íslandi sýna ótvírætt að

  • Ferðaþjónusta býr til einn þriðja af öllum gjaldeyristekjum þjóðarinnar.
  • Ferðaþjónusta skilar meira en 155 milljörðum króna á ári í skatttekjur til ríkis og sveitarfélaga
  • Ferðaþjónusta hefur umbylt efnahag Íslands með gjörbreyttri stöðu viðskipta við útlönd
  • Ferðaþjónusta hefur stutt við gengi krónu og þar með aukinn kaupmátt og betri lífskjör
  • Ferðaþjónusta skapaði helming allra nýrra starfa á landsbyggðinni í heilan áratug fyrir faraldur, þriðjung allra nýrra starfa á landinu í heild.

Opinber gögn sýna því að tilkoma ferðaþjónustu sem grunn útflutningsgreinar hefur gjörbylt íslensku efnahagslífi, stutt við gengi krónu með stöðugra innflæði gjaldeyristekna og stutt myndarlega við bætt lífskjör almennings í landinu. 

Að „koma böndum á“ ferðaþjónustu með stjórnvaldsaðgerðum sem takmarka verðmætasköpun greinarinnar væri því óábyrgt gagnvart efnahag landsins og myndi með tímanum leiða til lakari lífskjara fólks. 

Hér að neðan eru fimm staðreyndir um ferðaþjónustu, efnahag og lífskjör. Hægt er að deila myndinni á samfélagsmiðlum með því að nota rauða „Deila“ takkann neðst á myndinni. Einnig má opna hana í vafra hér: https://infogram.com/stadreyndir-um-ferdathjonustu-og-fjolgun-erlends-starfsfolks-1hnq41o38r3wp23?live

Hægt er að nálgast allar myndirnar á facebook síðu SAF

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi. Fundurinn fer fram þann …

Íslensk ferðaþjónusta setti svip á World Travel Market (WTM) sem fór fram í ExCeL-sýningarhöllinni í London dagana 3.–5. nóvember. Fulltrúar SAF sóttu …

Umhverfisdagur atvinnulífsins fór fram þann 27. október á Hótel Reykjavík Grand en í ár var sjónum beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi …

Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á neðangreindri lokaráðstefnu Evrópuverkefnis um örvottanir fyrir örnám í tengslum við ferðaþjónustu. Á lokaráðstefnunni, sem fram fer í …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …