Nýtt nám í ferðaþjónustu að hefjast

Hæft og vel menntað starfsfólk er lykilþáttur í velgengni ferðaþjónustufyrirtækja. Nú á fyrri hluta ársins 2025 hefst nýtt nám og raunfærnimat fyrir ferðaþjónustu, sem Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur unnið að síðustu ár í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar.

Allar upplýsingar um námið, raunfærnimat, einingafjölda, brautir í boði og námskrá þeirra er að finna á vef Hæfnisetursins.

  • Námið er 90 einingar og skiptist í 40 eininga kjarna og 50 eininga sérsvið. Sviðin eru Móttaka gesta, Böð, lindir og lón og Veitingar. Áfangar sem fást metnir með raunfærnimati stytta námið.
  • Raunfærnimat er þátttakendum að kostnaðarlausu og er í boði bæði á íslensku og ensku.
  • Námið verður í boði fyrir fólk sem hefur lokið raunfærnimati. Raunfærnimat og nám er í boði stafrænt og þátttaka óháð búsetu,
  • Inntökuskilyrði eru að hafa náð 23 ára aldri og hafa unnið í 3 ár í ferðaþjónustu.

Við bendum aðildarfyrirtækjum SAF sérstaklega á að hvetja starfsfólk sem uppfyllir skilyrðin til að nýta sér námið og raunfærnimatið. Áhugasamir geta skráð sig í raunfærnimat HÉR.

Mikilvægt er að skrá sig sem fyrst þar sem undirbúningur námsins er á lokastigi.

Fyrirtækjum sem hafa áhuga á að hvetja starfsfólk sitt til að nýta námið er bent á að hafa samband við Hauk Harðarson (haukur@frae.is) hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar fyrir 11. janúar 2025.

Tengdar fréttir

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …