Nýir tímar – ný hæfni

Hringborðsumræður með sérfræðingum í hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreinum.

Samtök ferðaþjónustunnar og Iðan fræðslusetur bjóða öllum sem áhuga hafa að taka þátt í 90 mínútna vef-hringborðsumræðum þann 29. apríl nk. (á Zoom) með sérfræðingum í hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreinum. Viðburðurinn er á vegum MCEU verkefnisins og Hosco ráðningarþjónustunnar. Á fundinum verður fjallað um færniþarfir og fræðsluleiðir fyrir fagfólk í greinunum. Umræðurnar byggja á niðurstöðum nýlegrar könnunar sem náði til 3800 starfsmanna í hótel- og veitingagreinum í Evrópu.

Farið verður um víðan völl á hringborðinu og rætt um hluti eins og sjálfbærni, stafræna hæfni, stjórnun og faglega hæfni starfsfólks. Sérstök áhersla verður lögð á þær breytingar sem eru að eiga sér stað á þessum sviðum. Einnig verður fjallað um hvernig hægt er að bregðast við þessum breytingum s.s. með marvissri þjálfun starfsfólks, nýráðningum og faglegri þróunarvinnu.

Umræðunum verður skipt í tvo hluta:

  • Kynning á fyrstu niðurstöðum í MCEU verkefninu þar sem fram kemur núverandi og framtíðarþörf færni í hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreinum.
  • Pallborðsumræður með alþjóðlegum sérfræðingum sem deila sínum sjónarmiðum og leiðum til úrbóta.

Umræðuna leiða sérfræðingar á sviði hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreina:

  • Craig Thompson – Forstjóri, THE-ICE
  • Gerard du Plessis – Aðstoðarframkvæmdastjóri alþjóðlegrar sölu, Lobster Ink (Ecolab)
  • John Lohr – Framvæmdastjóri samskiptasviðs, Dusit Thani College
  • Krumma Jónsdóttir – Frammistöðuráðgjafi og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði

Þinn ávinningur

  • Uppgötvaðu hvaða færni er eftirsótt af fagfólki í hótel-, veitinga- og ferðaþjónustugreinum í dag og í náinni framtíð.
  • Lærðu hvernig vinnuveitendur og fræðsluaðilar geta brugðist við vaxandi frænibili (e. skills gap).
  • Áttaðu þig á því hvað það er sem knýr fram breytingar, allt frá sjálfbærni til stafrænnar nýsköpunar.
  • Kannaðu hvernig aðferðir við þjálfun og örfræðsla eru að breyta fræðsluferlinu.

Hringborðið er tilvalinn vettvangur fyrir fagfólk, leiðtoga, kennara, stjórnendur og stefnumótandi aðila sem hafa hug á því að byggja upp fagfólk framtíðarinnar.

Skráðu þig hér til að taka þátt í þessu mikilvæga samtali!

Tengdar fréttir

Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök hafa opnað fyrir tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2025. Hvetja samtökin aðildarfyrirtæki til að senda inn tilnefningar eigi síðar …

Vesturland sótt heim

Á dögunum gerðu Samtök ferðaþjónustunnar víðreist um Vesturland þar sem formaður og starfsfólk samtakanna hittu fyrirtæki í ferðaþjónustu, forystufólk í sveitarstjórnum og …

Fjöldi kvenna í ferðaþjónustu komu saman í Gamla kvennaskólanum sl. miðvikudag til þess að fagna upphafi verkefnisins Konur í ferðaþjónustu sem Samtök …

Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað umsögn til forsætisráðuneytisins um áform um atvinnustefnu Íslands til 2035, sem kynnt voru í Samráðsgátt stjórnvalda 11. ágúst. …

Eitt ár er þar til Íslendingar upplifa almyrkva á sólu í fyrsta sinn síðan 1954. Um sögulegan atburð er að ræða því …

Evrópusambandið hefur undanfarin ár unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System(skammstafað EES). …