Íslandshótel hljóta hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu 2026

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár hlaut fyrirtækið Íslandshótel verðlaunin fyrir framúrskarandi árangur og leiðandi hlutverk í sjálfbærni og ábyrgum rekstri í íslenskri ferðaþjónustu.

Hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu hafa verið veitt frá árinu 2018 og eru ætlað að vekja athygli á fyrirtækjum sem sýna í verki hvernig ábyrgð, sjálfbærni og fagmennska geta farið saman. Verkefnið Ábyrg ferðaþjónusta hefur á undanförnum árum mótað viðmið innan greinarinnar og stuðlað að því að styrkja ímynd Íslands sem ábyrgs áfangastaðar.

Að þessu sinni bárust fjölmargar sterkar tilnefningar, en að mati dómnefndar skar Íslandshótel sig úr fyrir heildstæða og markvissa nálgun á sjálfbærni sem endurspeglast í stefnu, daglegum rekstri og ákvarðanatöku fyrirtækisins.

Íslandshótel er leiðandi félag í íslenskri ferðaþjónustu og hefur í meira en þrjá áratugi haft mótandi áhrif á þróun greinarinnar. Fyrirtækið rekur í dag 17 hótel víðs vegar um landið og hefur frá upphafi lagt áherslu á gæði, fagmennsku og ábyrgð, þar sem sjálfbærni er órjúfanlegur hluti af starfseminni.

Dómnefndin bendir sérstaklega á að Íslandshótel hafi byggt upp öfluga umgjörð um sjálfbærnimál og sé í fararbroddi þegar kemur að innleiðingu alþjóðlegra viðmiða. Öll hótel félagsins hafa hlotið Green Key vottun, sem felur í sér strangar kröfur um umhverfisstjórnun og ábyrga nýtingu auðlinda.

Þá hefur fyrirtækið einnig sýnt forystu í loftslagsmálum með því að vera fyrst íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja til að undirrita Glasgow-yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsaðgerðir í ferðaþjónustu. Með þeirri skuldbindingu hefur Íslandshótel sett sér skýr markmið um að draga verulega úr losun og ná kolefnishlutleysi á næstu áratugum.

Áhersla fyrirtækisins á samfélagslega ábyrgð nær einnig til mannauðs og jafnréttis. Íslandshótel var fyrsta ferðaþjónustufyrirtækið til að hljóta hinseginvottun Samtakanna ’78 og hefur jafnframt innleitt jafnlaunavottun og markvissa þjálfun starfsfólks. Þá hefur félagið haft jákvæð áhrif á nærsamfélög víða um land með samstarfi við staðbundin verkefni og sterkum tengslum við nærumhverfi sitt.

Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að Íslandshótel hafi ekki aðeins fylgt þróun í átt að ábyrgari ferðaþjónustu heldur einnig mótað hana og sett viðmið fyrir aðra í greininni. Með skýrri stefnu, gagnsæi og raunverulegum árangri sé fyrirtækið verðugur handhafi hvatningarverðlaunanna í ár.

Í dómnefnd sátu Jón Gestur Ólafsson, Katrín Georgsdóttir og Margrét Wendt.

Að Degi Ábyrgrar ferðaþjónustu stóðu Samtök ferðaþjónustunnar, Íslenski ferðaklasinn, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.

Tengdar fréttir

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Reykjavík Hilton Nordica fimmtudaginn 26. mars s.l. Fundurinn var afar fjölsóttur þrátt fyrir óstýrilátt veðurlag, enda …