Samtök ferðaþjónustunnar vekja athygli á auknum fjölda vefveiðitilfella (e. phising) þar sem gestir fá skilaboð, m.a. í gegnum WhatsApp, SMS eða tölvupóst, sem virðast tengjast bókunum þeirra á Booking.com. Líklegt er að þessi aukning tengist að einhverju leiti gagnaleka hjá Booking.com í apríl síðastliðnum.
Í skilaboðunum er viðkomandi gjarnan beðinn um að staðfesta greiðsluupplýsingar, greiða bókun að nýju eða smella á hlekki vegna meintra greiðsluvandamála. Í mörgum tilvikum innihalda skilaboðin raunverulegar bókunarupplýsingar og eru því mjög sannfærandi.
SAF hvetja ferðaþjónustuaðila til að:
- Tilkynna öll slík tilvik tafarlaust til Booking.com á report.booking.com
- Vara gesti við að deila aldrei greiðsluupplýsingum utan opinberra greiðsluleiða
SAF eru jafnframt að safna upplýsingum um þessi tilfelli til að kortleggja umfang vandans. Þeir aðilar sem verða varir við slík tilvik eru hvattir til að senda inn skjáskot eða lýsingar á atvikum á agust@saf.is.