Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum
Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu skrefum. Þar er fjallað um reynslu af álagsstýringu hér á landi og erlendis og dreginn saman lærdómur af samstarfi stjórnvalda, stofnana og ferðaþjónustunnar. Meginniðurstaðan er að árangursrík álagsstýring þurfi að byggja á skýrum stjórnunarramma, gögnum og virku samráði og að lausnir verði að taka mið af aðstæðum á hverjum áfangastað.
Álag á vinsæla ferðamannastaði er ein þeirra áskorana sem íslensk ferðaþjónusta þarf að takast á við til framtíðar. Fjölgun ferðamanna getur á ákveðnum stöðum og tímum aukið þrýsting á náttúru, innviði og nærsamfélög og haft áhrif á upplifun gesta. Í skýrslu SAF er þó lögð áhersla á að álag sé fyrst og fremst staðbundið viðfangsefni. Aðstæður séu ólíkar frá einum áfangastað til annars og því sé ekki hægt að beita einni almennri lausn alls staðar.

Greining vandans kemur á undan vali stjórntækis
Í skýrslunni er meðal annars horft til reynslu Bandaríkjanna, Nýja-Sjálands og Skotlands. Rauði þráðurinn í þeirri reynslu er að álagsstýring hefst ekki á því að velja ákveðið stjórntæki, heldur á að greina vandann.
Fyrst þurfi að skilgreina hvaða álag sé til staðar, hvar og hvenær það myndist og hvaða ástandi sé stefnt að. Í framhaldinu sé hægt að velja þau úrræði sem best henta hverju sinni. Þau geta meðal annars falist í uppbyggingu innviða, upplýsingagjöf og fræðslu, flæðisstýringu, bókunarkerfum, almenningssamgöngum, samningum um nýtingu, takmörkunum á aðgangi eða vel afmarkaðri og markvissri gjaldtöku.
Erlend reynsla sýnir jafnframt mikilvægi reglulegrar gagnaöflunar og eftirfylgni. Álagsstýring er því ekki einstök ákvörðun heldur stöðugt ferli þar sem aðgerðir eru metnar og aðlagaðar að breyttum aðstæðum.
Gjaldtaka og álagsstýring er ekki það sama
Eitt af meginstefum skýrslunnar er mikilvægi þess að gera skýran greinarmun á gjaldtöku til fjármögnunar annars vegar og gjaldtöku sem stjórntækis til álagsstýringar hins vegar.
Gjaldtaka getur verið eitt af mörgum verkfærum álagsstýringar, en til þess þarf hún að vera hönnuð til að hafa áhrif á skilgreint álag, svo sem fjölda gesta, tímasetningu heimsókna eða dreifingu þeirra. Almenn gjaldtaka sem leggst með sama hætti á gesti óháð stað, tíma eða raunverulegu álagi felur hins vegar ekki sjálfkrafa í sér markvissa álagsstýringu.
Skýrslan bendir jafnframt á að fjármögnun innviða og náttúruverndar sé mikilvægt sjálfstætt viðfangsefni. Tekjuöflun og álagsstýring geti farið saman, en markmið þeirra og áhrif þurfi að vera skýr.
Byggt á samstarfi og ráðstefnu um álagsstýringu
Skýrslan byggir meðal annars á samstarfi sem SAF hafði frumkvæði að árið 2024 með Ferðamálastofu, Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarði og Þingvallaþjóðgarði. Samstarfið leiddi meðal annars til ráðstefnunnar Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum á Ferðaþjónustudeginum í október 2024.
Þar komu saman hátt í fjögur hundruð þátttakendur úr ferðaþjónustu, stjórnsýslu, fræðasamfélagi og öðrum hópum. Erlendir sérfræðingar miðluðu reynslu frá Bandaríkjunum, Nýja-Sjálandi og Skotlandi og í vinnustofum var unnið með raunveruleg íslensk dæmi, meðal annars Stuðlagil, Landmannalaugar, Geysi og íshellaferðir.
Niðurstöður þeirrar vinnu voru í góðu samræmi við erlendu dæmin, þ.e. að lykilforsendur árangurs í álagsstýringu séu samráð, traust, gögn, fyrirsjáanleiki og fjölbreytt verkfærakista.
SAF kalla eftir því að vinna við stjórnunarramma hefjist á ný
Í ferðamálastefnu til ársins 2030 er gert ráð fyrir þróun verkfærakistu til að meta þolmörk og bregðast við álagi, auk innleiðingar álagsstýringar á ferðamannastöðum. Starfshópur stjórnvalda og hagaðila var skipaður árið 2025 til að vinna að útfærslu þessara aðgerða, en vinna hans var stöðvuð á fyrstu stigum.
SAF telja mikilvægt að sá þráður verði tekinn upp að nýju og leggja til að
- vinna starfshóps stjórnvalda og hagaðila um álagsstýringu verði hafin á ný;
- mótaður verði sameiginlegur skilningur á því hvað álagsstýring felur í sér og hvaða markmiðum hún eigi að þjóna;
- skilgreint verði formlegt og fyrirsjáanlegt ákvörðunarferli sem byggi á gögnum og samráði;
- þróuð verði samræmd verkfærakista sem hægt sé að aðlaga að ólíkum áfangastöðum;
- byggt verði á þeirri reynslu og þeim innviðum sem þegar eru til staðar hér á landi, ásamt lærdómi frá öðrum ríkjum.
Markmiðið er að skapa heildstæðan ramma sem stuðlar samtímis að vernd náttúru, góðri upplifun gesta, samfélagslegri sátt og sjálfbærri verðmætasköpun í ferðaþjónustu.