Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) skora á ríkisstjórnina að hlusta á raunverulegar áhyggjur fólks sem starfar í ferðaþjónustu um land allt og endurskoða boðaðar aðgerðir sem bitna á greininni. Áskoruninni var beint til þriggja ráðherra á fundi samtakanna og Samtaka atvinnulífsins í Reykjavík miðvikudaginn 18. nóvember.
Áskoruninni var beint til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra og Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Hún var lögð fram á lokafundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?, sem SAF og samstarfsaðilar hafa staðið fyrir víða um land í október og nóvember.
Í áskoruninni eru ráðherrarnir hvattir til að standa við þau loforð sem gefin voru, fylgja eigin atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar og vinna í samræmi við samþykkta ferðamálastefnu.
Leiðin til aukinna tekna er að stækka ferðaþjónustukökuna
SAF leggja áherslu á að framtíð ferðaþjónustunnar byggist á samkeppnishæfu og fyrirsjáanlegu rekstrarumhverfi sem skapar fyrirtækjum svigrúm til fjárfestinga, nýsköpunar og verðmætasköpunar.
Í áskoruninni segir:
„Leiðin að auknum tekjum samfélagsins af ferðaþjónustu er að stækka Ferðaþjónustukökuna.“
SAF hafa bent á að með samstilltu átaki stjórnvalda og ferðaþjónustunnar megi auka verðmætasköpun og tekjur samfélagsins af greininni án þess að leggja sífellt auknar álögur á fyrirtækin. Samtökin hafa m.a. bent á fjórar leiðir til að stækka Ferðaþjónustukökuna:
- Tryggjum stöðugt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi. Með því að skapa ferðaþjónustunni svigrúm til sjálfbærs vaxtar um 2–3% á næsta ári mætti auka tekjur ríkissjóðs um 3,8–5,7 milljarða króna, samkvæmt mati SAF.
- Eflum markaðssetningu Íslands. Með sameiginlegu markaðsátaki stjórnvalda og ferðaþjónustunnar, þar sem fyrirtækin leggja að minnsta kosti átta milljarða króna á móti einum milljarði frá ríkinu, mætti laða að um 100 þúsund ferðamenn til viðbótar og skapa rúmlega átta milljarða króna í skatttekjur.
- Styrkjum heilsársferðaþjónustu um land allt. Með því að auka nýtingu utan háannar um 10% mætti skapa um 8,3 milljarða króna í aukin verðmæti, nýta fjárfestingar og innviði betur og stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna yfir árið.
- Hvetjum ferðamenn til lengri dvalar. Ef 30% ferðamanna dveldu einni nótt lengur á Íslandi gæti það skilað um sex milljörðum króna í aukin verðmæti, án þess að fjölga þyrfti ferðamönnum.
Þessar leiðir sýna að tækifærin felast ekki eingöngu í fjölgun ferðamanna heldur einnig í meiri verðmætasköpun á hvern gest, betri nýtingu innviða og aukinni starfsemi utan háannar. Með samstarfi, fyrirsjáanleika og markvissri sókn geta stjórnvöld og atvinnugreinin þannig stækkað ferðaþjónustukökuna til hagsbóta fyrir samfélagið allt.
Þessar leiðir eru í boði í stað þeirra umfangsmiklu breytinga á skatt- og gjaldaumhverfi ferðaþjónustunnar sem stjórnvöld hafa boðað, en SAF hafa ítrekað bent á mikilvægi þess að meta samanlögð áhrif slíkra aðgerða á samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu, rekstur fyrirtækja og atvinnulíf um land allt.
Stjórnvöld hvött til samstarfs
Á fundinum 18. nóvember var fjallað um efnahagsleg og samfélagsleg áhrif ferðaþjónustunnar, skattspor greinarinnar árið 2025 og áhrif fyrirhugaðra skatta og gjalda. Þá áttu fulltrúar stjórnmálaflokkanna á Alþingi samtal um þau stóru mál sem nú liggja fyrir þinginu og varða ferðaþjónustuna.
Með áskoruninni vilja SAF undirstrika mikilvægi þess að stjórnvöld og atvinnugreinin vinni saman að því að styrkja undirstöður ferðaþjónustunnar til framtíðar.
„Vinnum saman að því verkefni!“ eru lokaorð áskorunarinnar.
SAF hvetja stjórnvöld til að taka áskoruninni af alvöru og skapa ferðaþjónustunni skilyrði til áframhaldandi vaxtar og verðmætasköpunar um land allt.