Entry/Exit kerfið innleitt að fullu

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). Kerfið mun leysa af hólmi handstimplun vegabréfa og færa skráningu komu og brottfarir ferðamanna til og frá ríkjum utan Schengen yfir í stafrænt form. Innleiðing skráningarkerfisins hófst þann í október 2025 á öllum ytri landamærum Schengen svæðisins, þar á meðal á landamærum Íslands. Innleiðing kerfisins hefur verið stigvaxandi seinustu mánuði en þann 10. apríl 2026 verður fullri innleiðingu náð og kerfið komið í gagnið á öllum ytri landamærum Íslands.

Hvað er Entry/Exit kerfið og hvernig virkar það?

Kerfið skráir sjálfkrafa helstu upplýsingar um ferðamanninn, þ.e. nafn, fæðingardag, vegabréfanúmer, fingraför og andlitsmynd, þegar hann fer um ytri landamæri Schengen. Markmið skráningarinnar er að flýta fyrir afgreiðslu á landamærum, bæta öryggi og tryggja nákvæma skráningu um hvenær ferðamenn koma og fara, sem hjálpar til við að koma í veg fyrir ólöglega yfirveru. Kerfið tekur aðeins til borgara utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss sem ferðast til eða frá Schengen.

Mikilvægt að aðskilja annars vegar Entry/Exit landamærakerfið og hins vegar ETIAS ferðaheimildakerfið sem áætlað er að taki ekki gildi fyrr en á fjórða ársfjórðungi 2026.

Upplýsingasíða Evrópusambandsins um Entry/Exit kerfið

Hvað þurfa íslensk ferðaþjónustufyrirtæki að hafa í huga?

Líkt og kom fram í frétt á vef SAF þann 12. ágúst 2025 þurfa ferðaþjónustuaðilar að kynna sér reglurnar og tryggja að starfsmenn og viðskiptavinir séu vel upplýst. Evrópusambandið hefur útbúið samræmt kynningarefni um Entry/Exit kerfið á 26 tungumálum sem félagsmönnum SAF var sent síðastliðið haust. Nú þegar kerfið hefur verði innleitt að fullu hefur aðildarfyrirtækjum SAF verið sendur niðurhalshlekkur á uppfært efni á ensku sem ferðaþjónustufyrirtæki geta nýtt. Hægt er að hafa samband við skrifstofu SAF og óska eftir uppfærðu efni á fleiri tungumálum. SAF hvetja aðildarfyrirtæki til að nýta efnið vel í samskiptum við viðskiptaaðila sína.

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …