Samkeppnishæfni, stafræn þróun og vinnumarkaðsmál á þingi HOTREC á Írlandi

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana 20.–22. apríl. Þingið var haldið í samstarfi við Irish Hotels Federation og Restaurants Association of Ireland og sóttu það fulltrúar hagsmunasamtaka ferðaþjónustu frá yfir 30 Evrópuríkjum.

SAF eru aðilar að HOTREC og er samstarfið mikilvægur vettvangur til að fylgjast með þróun mála á vettvangi Evrópusambandsins, miðla reynslu milli landa og gæta hagsmuna ferðaþjónustufyrirtækja í evrópsku samhengi. Á þinginu var meðal annars fjallað um samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja, aukið regluálag, stafræna dreifingu, sjálfbærni, vinnuafl og færni, auk efnahagslegra og geopólitískra áskorana.

Í opnunarávörpum var lögð áhersla á mikilvægi ferðaþjónustu fyrir evrópskt atvinnulíf, samfélög og menningu. Michael McGrath, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins á sviði lýðræðis, réttarríkis og neytendaverndar, ávarpaði þingið með myndbandsávarpi og fjallaði um stöðu greinarinnar og vaxandi þrýsting á fyrirtæki, meðal annars vegna orkukostnaðar, sjálfbærnikrafna og stjórnsýslubyrði.

Í pallborðsumræðum um ferðaþjónustustefnu og samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja ræddu Cynthia Ní Mhurchú, þingmaður á Evrópuþinginu, Caroline Bocquel, forstjóri Fáilte Ireland, og Conor Healy, forstjóri viðskiptaráðs Cork, um þörfina fyrir skýrari stuðning við ferðaþjónustufyrirtæki og einfaldara starfsumhverfi. Í umræðunum kom meðal annars fram að evrópsk ferðaþjónusta þurfi ekki aðeins kynningu heldur einnig stefnumótun sem auðveldar fyrirtækjum að starfa, vaxa og fjárfesta til framtíðar.

Stafræn mál voru fyrirferðarmikil á þinginu. Sérstaklega var fjallað um samskipti gististaða við stórar bókunar- og leitarveitur, áhrif Digital Markets Act og mikilvægi þess að fyrirtæki hafi raunverulegt svigrúm til að móta eigin verð-, greiðslu- og dreifingarstefnu. Þá voru kynntar niðurstöður úr Evrópsku hóteldreifingarrannsókninni 2026, þar sem fram kom að beinar bókanir hafa minnkað sem hlutfall gistinátta frá 2021 en bókanir í gegnum netmiðla hafa aukist. Rannsóknin bendir jafnframt til þess að auknar áskoranir fyrir hótelrekendur felist nú í undirboðum netmiðla, fjölrásadreifingu og hærri afbókunartíðni í gegnum bókunarveitur.

Á þinginu var einnig fjallað um falsaðar umsagnir á netinu og áhrif þeirra á orðspor, tekjur og rekstrarálag fyrirtækja. Prófessor Roland Schegg fjallaði um að falsaðar umsagnir séu víða taldar vaxandi vandamál í evrópskri ferðaþjónustu, sérstaklega á opnum umsagnarkerfum á borð við Google, TripAdvisor og samfélagsmiðlum. Hann lagði jafnframt áherslu á þörfina fyrir skýrari ábyrgð netmiðla, skýrar og árangursríkar kvörtunarleiðir og aukið gagnsæi.

Sjálfbærni og nýjar Evrópureglur þar um voru einnig á dagskrá. Fjallað var um væntanlega stefnu Evrópusambandsins um sjálfbæra ferðaþjónustu, þróun umhverfisviðmiða fyrir gistingu, breytingar á reglum um umbúðir, úrgang og meindýravarnir. Áhersla HOTREC er að nýjar reglur séu skýrar, raunhæfar og taki mið af stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja í ferðaþjónustu.

Vinnumarkaðsmál og færniþörf voru einnig til umræðu, en HOTREC kynnti vinnu sína vegna skorts á starfsfólki og færni í greininni, þar á meðal áherslur á menntun og þjálfun, bætta ímynd atvinnugreinarinnar, aukinn hreyfanleika vinnuafls og aðgengi að evrópskum stuðningsúrræðum. Þá var fjallað um Talent Pool-verkefni Evrópusambandsins og möguleika þess til að styðja við mannauðsframboð í greinum þar sem skortur er á starfsfólki.

Lokaþáttur þingsins var gagnvirk vinnustofa um hagsmunagæslu og áhrif á stefnumótun, undir stjórn Christophe Lecureuil frá European Centre for Public Affairs. Þar skiptust aðildarsamtök HOTREC á reynslu um árangursríka hagsmunagæslu, meðal annars í málum sem varða skattlagningu ferðaþjónustu, skammtímaleigu, sjálfbærni, stafræna vettvanga og ímynd greinarinnar.

Næsta þing HOTREC verður haldið í Vilníus í Litháen dagana 12.–14. október 2026.

Tengdar fréttir

Fulltrúar SAF tóku þátt í 92. þingi HOTREC, samtaka hótel- og veitingaageirans í Evrópu, sem fram fór í Cork á Írlandi dagana …

Á Degi ábyrgrar ferðaþjónustu, sem fram fór í Grósku þann 21. apríl, voru hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu afhent við hátíðlega athöfn. Í ár …

Sigurvegarar forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu eru nú á leið til Grythyttan í Svíþjóð þar sem þeir keppa fyrir …

Undanfarin ár hefur Evrópusambandið unnið að rafrænu skráningarkerfi ferðamanna sem ferðast inn fyrir sameiginleg landamæri Schengen svæðisins – svokölluðu Entry/Exit System (EES). …

Þann 21. apríl kl. 14:00 verður Dagur ábyrgrar ferðaþjónustu haldinn í hátíðarsal Grósku. Viðburðurinn er vettvangur til að staldra við, horfa yfir …

Samhliða aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór 26. mars sl. var gefin út glæsileg ársskýrsla samtakanna fyrir starfsárið 2025 – 2026. Í …