Framboð til stjórnar SAF

Aðalfundur SAF 2026 fer fram fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica og er skráning í fullum gangi. Í aðdraganda fundar auglýsti kjörnefnd eftir framboðum til stjórnar fyrir starfsárin 2026-2028 og rann framboðsfrestur út fimmtudaginn 12. mars. Enn er hægt að senda inn framboð til fagnefnda.

Frambjóðendur

Átta aðilar gáfu kost á sér í stjórn samtakanna en Bragi Skaftason, eigandi Krónikan veitingastaðs, dró framboð sitt til baka, því eru sjö frambjóðendur í kjöri.

Eitt framboð barst til formanns SAF, en Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Katla DMI ehf. gefur kost á sér og verður því sjálfkjörinn á aðalfundi samtakanna þann 26. mars nk.

Frambjóðendur til stjórnar SAF fyrir starfsárin 2026 – 2028 í stafrófsröð:

Kosningar á aðalfundi fara fram með rafrænum hætti líkt og undanfarin ár. Rafræn kosning hefst viku fyrir fund eða fimmtudaginn 19. mars og stendur fram yfir kynningu frambjóðenda á aðalfundi. Þá verður hægt að nálgast kynningu á frambjóðendum á fimmtudaginn nk. á vettvangi SAF.

Fjölgun í stjórn SAF – lagabreytingartillaga stjórnar

Fyrir aðalfundi SAF 2026 liggur tillaga um breytingu á lögum samtakanna sem gengur út á að fjölga meðstjórnendum í stjórn SAF úr sex (6) í átta (8) ásamt því að fella á brott ákvæði laga samtakanna um varamenn í stjórn. Stjórn SAF verði því skipuð níu (9) manns í stað sjö (7) í dag. Engir varamenn verða í stjórn. Lagabreytingin myndi taka strax gildi, verði hún samþykkt á aðalfundinum, og níu manna stjórn tekur þá strax til starfa að aðalfundi loknum. Ef lagabreytingin verður samþykkt á aðalfundinum verður kjörið um fimm (5) meðstjórnendur, fjórir (4) efstu í kosningunum verða kjörnir til tveggja ára (2026-2028) en einn (1) til eins árs (2026-2027).

Tengdar fréttir

SAF, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða bjóða leikum og lærðum á fund um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Fundurinn fer fram …

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldhækkanir, samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar og áhrif á atvinnulíf og byggðir voru í brennidepli á fyrsta fundi fundarraðarinnar Mótvindur – Eru …

Samtök ferðaþjónustunnar gera verulegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 og telja það vera alvarlega atlögu að íslenskri ferðaþjónustu. Það …

Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn áformum stjórnvalda um að taka upp nýtt náttúru- og innviðagjald. Í umsögn samtakanna við drög að frumvarpinu …

Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum Samtök ferðaþjónustunnar gefa í dag út skýrsluna Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum – Reynsla, lærdómur og tillögur að næstu …

Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til fundaraðar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar um allt land í október og nóvember undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru …