Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 19.-26. mars 2026
Ég er 63 ára gamall, fæddur og uppalinn á Akureyri, en hef búið í Hafnarfirði síðastliðin 35 ár. Ég er kvæntur Báru Kristjánsdóttur og eigum við saman tvær dætur.
Ég er einn af eigendum Hölds / Bílaleigu Akureyrar og keypti fyrirtækið árið 2003 ásamt samstarfsfélögum mínum af stofnendum þess. Ég hef starfað hjá Höldi alla mína starfsævi og notið þeirra forréttinda að fylgjast með og taka virkan þátt í uppbyggingu og vexti ferðaþjónustunnar allt frá árinu 1978.
Það hefur verið bæði lærdómsríkt og ánægjulegt að fylgjast með þeim miklu breytingum sem hafa átt sér stað í greininni á tæplega hálfrar aldar tímabili. Ég læt af störfum sem framkvæmdastjóri Hölds / Bílaleigu Akureyrar 1. maí nk., en mun áfram starfa hjá fyrirtækinu sem stjórnarformaður og eigandi.
Ég hef starfað innan Samtaka ferðaþjónustunnar frá stofnun þeirra og þekki því vel þau verkefni og áskoranir sem samtökin og greinina snerta.
Ég átti sæti í stjórn SAF árin 2014–2016 og hef starfað í bílaleigunefnd samtakanna í yfir 20 ár, þar af meira en 10 ár sem formaður. Auk þess hef ég tekið þátt í fjölmörgum nefndum og starfshópum sem tengjast starfsemi SAF, sérstaklega á sviði laga- og reglugerðarmála.
Að mínu mati hafa samtökin, starfsfólk þeirra og stjórn unnið afar gott starf í síbreytilegri og hratt vaxandi atvinnugrein. SAF þarf að vera traustur og trúverðugur málsvari bæði lítilla og stórra fyrirtækja alls staðar á landinu og tryggja að hagsmunir greinarinnar heyrist skýrt í samskiptum við stjórnvöld.
Það er lykilatriði að samtökin haldi áfram að stuðla að uppbyggingu sjálfbærrar ferðaþjónustu sem skilar ávinningi fyrir samfélagið allt.
Ég tel að bæta þurfi og styrkja samtalið við stjórnvöld. Þrátt fyrir vandaðar og áreiðanlegar upplýsingar hefur stundum verið misræmi á milli þess sem stjórnvöld segja að þau hlusti á og þess sem raunverulega skilar sér inn í ákvarðanatöku.
Það er mikilvægt að ferðaþjónustan sé rekin í sátt við þjóðina og að dýpka skilning almennings á mikilvægi hennar. Jafnframt þarf að tryggja rekstrarbærni og sjálfbæra afkomu fyrirtækja í greininni og þar skiptir meðal annars fyrirsjáanleiki miklu máli.
Öryggismál verða ávallt að vera í stöðugri þróun og uppfærslu. Þá tel ég nauðsynlegt að staða Reykjavíkurflugvallar verði tryggð og að hann verði byggður upp með það að leiðarljósi að starfsemi hans verði óhreyfð næstu 20–25 árin hið minnsta.
Einnig þarf að tryggja að gjaldtaka á bílastæðum og vinsælum ferðamannastöðum sé sanngjörn, gagnsæ og skiljanleg.
Að lokum er afar mikilvægt að stjórn SAF starfi í einingu og nái víðtækri sátt um þau mál sem efst eru á baugi. Ég býð mig fram til stjórnar í þeirri trú að ég njóti trausts til góðra verka og að ég geti lagt mitt af mörkum til að ákvarðanir séu teknar út frá heildarhagsmunum greinarinnar.