Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 19.-26. mars 2026
Ég starfa sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Keahótela og hef áratuga reynslu af stjórnun, sölu og þjónustu. Ég hef alltaf haft gaman af því að takast á við nýjar áskoranir, byggja upp teymi og finna leiðir til að ná árangri í kraftmiklu umhverfi.
Ég er gift og á fjóra stráka og daglegt líf utan vinnu er því líflegt og skemmtilegt. Ég er hláturmild og beinskeytt, segi hlutina eins og þeir eru og legg áherslu á gott samstarf og jákvæðan anda í teymum.
Síðustu ár hef ég starfað sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Keahótelum, þar sem ég ber ábyrgð á sölu, markaðsmálum og tekjustýringu. Keahótel rekur hótel víðs vegar um landið með ólíka áherslu og markhópa, og starfið felur í sér að þróa markaðssetningu, dreifileiðir og samstarf við ferðaþjónustuaðila og viðskiptavini á alþjóðlegum mörkuðum.
Í þessu starfi hef ég öðlast góða og raunhæfa innsýn í rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar og þær áskoranir og tækifæri sem greinin stendur frammi fyrir.
Ég sit einnig í stefnuráði Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og kem þar að stefnumótun og markaðssetningu áfangastaðarins, sem hefur aukið enn frekar skilning minn á mikilvægi samstarfs innan greinarinnar.
Áður starfaði ég hjá Isavia sem framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni. Ég hef jafnframt víðtæka stjórnunar- og rekstrarreynslu frá Sýn/Vodafone þar sem ég starfaði til fjölda ára og bar ábyrgð á umfangsmikilli sölu- og þjónustustarfsemi.
Ég tel að þessi blanda af reynslu úr ferðaþjónustu, sölu og markaðsmálum, ásamt víðtækri stjórnunarreynslu, geti nýst vel í stjórn SAF.
Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu og styðja við áframhaldandi þróun hennar til framtíðar.
Samtök ferðaþjónustunnar eru fyrir mér rödd einnar mikilvægustu atvinnugreinar landsins. Þau eiga að standa vörð um samkeppnishæfni, stöðugleika og sanngjarnt rekstrarumhverfi, en líka tala skýrt fyrir því hvaða verðmæti ferðaþjónustan skapar fyrir samfélagið allt.
Ferðaþjónustan er ein af undirstöðum íslensks atvinnulífs og hefur víðtæk áhrif á hagkerfið, atvinnu og lífsgæði um allt land.
Þess vegna skiptir miklu máli að greinin hafi sterk samtök sem tala skýrt og af festu fyrir hennar hönd.
Að mínu mati hafa SAF staðið sig vel í því hlutverki og verið sýnileg í mikilvægri umræðu um rekstrarskilyrði og framtíð greinarinnar.
Mín áhersla væri að SAF haldi áfram að verja hagsmuni greinarinnar af festu og með skýrum rökum, en jafnframt horfi markvisst til framtíðar.
Við þurfum að skapa stöðugra og samkeppnishæfara rekstrarumhverfi fyrir ferðaþjónustu til lengri tíma.
Það felur annars vegar í sér gott samstarf við stjórnvöld um rekstrarskilyrði og hins vegar áframhaldandi áherslu á dreifingu ferðamanna, bæði yfir árið og um landið. Þannig styrkjum við rekstur fyrirtækja, nýtum innviði betur og byggjum upp sterkari atvinnugrundvöll víðar um land.
Mér finnst SAF hafa unnið gott starf, en það má efla enn frekar upplýsingamiðlun og tala skýrar fyrir því hvaða verðmæti ferðaþjónustan skapar. Einnig tel ég mikilvægt að samtökin séu ekki aðeins í vörn heldur líka í sókn, með jákvæða og skýra sýn fyrir greinina.
Ég tel að þar liggi eitt stærsta tækifæri SAF á næstu árum.