Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 19.-26, mars 2026
Ég bý í Reykjavík en er fæddur og uppalinn á Vatnsleysuströnd. Ég er kvæntur Sigríði Önnu Árnadóttur og við eigum þrjú börn. Ég er með BSc í alþjóðamarkaðsfræði frá Tækniháskóla Íslands (nú HR) og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Grenoble Ecole de Management í Frakklandi. Ég hef einnig lokið námi sem viðurkenndur stjórnarmaður frá Akademias.
Ég hef unnið í markaðsmálum og stefnumótun í yfir 25 ár, m.a. sem ráðgjafi, og síðustu sjö ár hef ég starfað sem forstöðumaður markaðsmála hjá Icelandair þar sem ég leiði markaðssetningu félagsins og Íslands á öllum lykilmörkuðum. Á þessum árum hef ég unnið náið með fjölbreyttum aðilum innan ferðaþjónustunnar að því að kynna Ísland og styrkja stöðu landsins sem áfangastaðar. Ég kom að mótun ferðamálastefnu stjórnvalda til ársins 2030, sit í útflutnings- og markaðsráði, í stjórn Inspired by Iceland – North America (Taste of Iceland) og í stjórn Bresk-íslenska viðskiptaráðsins.
Ég hef setið í stjórn Íslandspósts, Icelandic Lamb og fleiri stjórnum verkefna og félagasamtaka
Ég kem með yfirgripsmikla reynslu af alþjóðlegri markaðssetningu, samstarfi þvert á greinina og verkefnum sem snúa að því að byggja upp eftirspurn til Íslands. Þá hef ég einnig reynslu af stjórnarstörfum og stefnumótun sem ég tel geta nýst vel í starfi SAF.
SAF eru mikilvægur sameiginlegur vettvangur fyrir greinina og gegna lykilhlutverki í að koma sjónarmiðum hennar á framfæri.
Ferðaþjónustan er ein af stærstu atvinnugreinum landsins og því skiptir miklu máli að rödd hennar sé skýr og samstillt. Mér finnst SAF hafa byggt upp sterka stöðu, en fram undan eru krefjandi verkefni tengd samkeppnishæfni, regluverki og uppbyggingu áfangastaðarins Íslands.
Ég myndi leggja áherslu á að halda uppi öflugri og málefnalegri hagsmunagæslu til að styrkja samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu til lengri tíma.
Það felst meðal annars í að: