Framboð til stjórnar 2026: Helga Árnadóttir

Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 19.-26. mars 2026

Helga Árnadóttir

framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá Bláa lóninu

Kæru félagar í SAF,

Ég heiti Helga Árnadóttir og starfa sem framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá Bláa Lóninu. Ég hef starfað innan ferðaþjónustunnar meira og minna síðan árið 1996. Fyrsta áratuginn hjá Icelandair í ýmsum stjórnendastörfum. Á árunum 2013-2018 var ég framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og sl. 8 ár hef ég starfað hjá Bláa Lóninu.

Ég tel mig hafa víðtæka reynslu innan greinarinnar en einnig hvað varðar umgjörð hennar á vettvangi stjórnvalda, sveitafélaga, Íslandsstofu og innan Samtaka atvinnulífisins hvar ég hef setið í stjórn og framkvæmdastjórn.

Á sínum tíma kom ég að stofnun og sat í stjórn Stjórnstöðvar ferðamála sem var 5 ára samstarfsvettvangur stjórnvalda og greinarinnar á miklu vaxtarskeiði hennar. Að mínu mati var hann skynsamleg nálgun á flókinni stöðu sem komin var upp á þeim tíma, en tryggja þurfti sem allra best vöxt og viðgang greinarinnar á sama tíma og stjórnvöld voru að feta sín fyrstu spor hvað varðar að kynnast eðli og sérkennum nýrrar undirstöðuatvinnugreinar þjóðarinnar. Lausnamiðuð hugsun, að draga rétta aðila að borðinu og að tryggja sameiginlegan skilning og samtakamátt viðeigandi aðila var markmiðið. Ég er stolt af aðkomu minni að því verkefni.

Ástæða þess að ég sækist eftir sæti í stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar er einskær áhugi minn á greininni og umgjörð hennar. Ég sé bara tækifæri, tækifæri fyrir greinina að sækja fram, bæta umgjörð hennar og tryggja sjálfbæran vöxt. Samtök ferðaþjónustunnar eru vettvangur til að stuðla að bættu rekstrarumhverfi, vinna að samhljóm og aðhaldi gagnvart stjórnvöldum og leiða hana áfram. Óvissu og óróa í ytra og innra umhverfi greinarinnar þarf að lágmarka, tryggja þarf umgjörð sem fyrirtækin, stór sem smá, og um allt land, geta athafnað sig í, þar sem fyrirsjáanleiki og gagnkvæmur skilningur liggur fyrir.

Þannig vil ég sjá ferðaþjónustuna þroskast og þróast og mig langar að fá að vera hluti af þeirri vegferð.

Ég óska því eftir stuðningi þínum kæri félagsmaður á aðalfundi samtakanna sem fram fer þann 26. mars nk.

Kær kveðja,
Helga

Helga Árnadóttir

Allir frambjóðendur til stjórnar SAF 2025: