Samfélagsábyrgðarstefna

Samtaka ferðaþjónustunnar

Samfélagsábyrgð er grundvallarþáttur í starfi fyrirtækja

Ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi eru mikilvægur hluti samfélagsins. Þau færa gríðarmikil verðmæti inn í samfélagið og skila stórum hluta þeirra í skatttekjum til samfélagslegra verkefna og til uppihalds kerfum þess. Fyrirtækin veita fjölda fólks atvinnu og þau gætu ekki starfað án alls þess frábæra starfsfólks sem ljáir þeim starfskrafta sína. Fyrirtæki þrífast best í gróandi og lífvænlegum samfélögum, stórum og smáum, og fyrirtæki sem láta sig nærsamfélagið varðaná betri árangri en önnur til lengri tíma.

Í starfi sínu stuðlar SAF að sjálfbærri nýtingu auðlinda og hvetur starfsmenn sína, aðildarfyrirtæki og aðra hagaðila til að hafa samfélagsábyrgð, umhverfismál og ábyrga stjórnarhætti að leiðarljósi í allri sinni starfsemi. Með áherslu á að : 

  • ganga vel um og virða náttúru og umhverfi.
  • vinna að jákvæðum áhrifum atvinnugreinarinnar á umhverfi og samfélag.
  • draga úr umhverfisáhrifum m.a. losun gróðurhúsalofttegunda.
  • fræða starfsfólk og gesti um samfélagsábyrgð.
  • sýna ábyrgð og virðingu gagnvart starfsfólki m.a. með því að virða réttindi og stuðla að öryggi og jafnræði á vinnustað.
  • stuðla að fyrirmyndar upplifun viðskiptavina m.a. með því að hafa öryggi gesta að leiðarljósi.
  • vera virk og sýnileg í umfjöllun um umhverfis og samfélagsmál.
  • fyrirtæki setji sér markmið tengd samfélagsábyrgð og birti þau opinberlega.
 

SAF mun leitast við að styðja aðildarfélög við á ná markmiðum sínum og efla samfélagsábyrgð innan íslenskrar ferðaþjónustu.

Umhverfisstefna Samtaka ferðaþjónustunnar var fyrst unnin af umhverfisnefnd samtakanna og staðfest af stjórn SAF árið 2000. Stefnan var síðast uppfærð af nefnd um samfélagsábyrgð og samþykkt af stjórn samtakanna í maí 2020.