Samtaka ferðaþjónustunnar
Samtök ferðaþjónustunnar þjóna mikilvægum tilgangi fyrir félagsmenn sína sem sameiginlegur málsvari og öflugur vettvangur fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu og vilja stuðla að framförum í greininni. Tilgangur og markmið samkeppnisréttaráætlunar SAF er að greina og draga úr samkeppnisréttarlegum áhættuþáttum og tryggja eins og kostur er að samtökin starfi í samræmi við samkeppnislög og góða viðskiptahætti.
Samkeppnislög eru nauðsynleg til að tryggja virka og heilbrigða samkeppni og koma í veg fyrir framgöngu fyrirtækja sem talin eru geta skaðað samkeppni og þar með hagsmuni neytenda. Þannig felast ríkir almannahagsmunir í að samkeppni sé virk á mörkuðum.
SAF leggja höfuðáherslu á að starfsemi samtakanna samræmis lögum í hvívetna og sé fagleg á allan hátt. Þau fyrirtæki og einstaklingar sem starfa á vettvangi SAF þurfa að vera meðvitaðir um skyldur sínar samkvæmt samkeppnislögum og er fræðsla gagnvart félagsmönnum mikilvægur þáttur í að tryggja það markmið. Í þeim tilgangi hafa samtökin sett sér samkeppnisréttarstefnu og áætlun sem miða að þessum markmiðum
Tilgangur samkeppnisréttarstefnu Samtaka ferðaþjónustunnar er að tryggja fagleg og gegnsæ vinnubrögð í starfsemi samtakanna og fyrirbyggja háttsemi sem brotið gæti gegn ákvæðum samkeppnislaga.
Samkeppnisstefna þessi skal vera aðgengileg á heimasíðu félagsins. Henni skal jafnframt dreift til nýrra aðildarfyrirtækja og allra fulltrúa sem starfa á vettvangi samtakanna.
Skilyrði fyrir inngöngu í samtökin skulu vera gegnsæ, málefnaleg og hlutlaus og skal gert grein fyrir þeim í samþykktum samtakanna á hverjum tíma. Skal öllum er uppfylla skilyrðin heimil innganga í samtökin enda hafi viðkomandi sótt um aðild og greiði tilskilin aðildargjöld.
Þátttaka í starfi Samtaka ferðaþjónustunnar felur í sér miðlun á upplýsingum og reynslu og þátttöku í umræðu um sameiginleg hagsmunamál aðildarfyrirtækja. Samskipti milli fyrirtækja skal ávallt hagað þannig tryggt sé að ákvæði laga séu virt og að á engan hátt stuðlað að samráði eða samstilltum aðgerðum í skilningi samkeppnislaga. Þá skal ávallt tryggt að starfsmenn og stjórnendur fari í starfi á vettvangi samtakanna að þeim fyrirmælum sem fram koma í sátt þeirri sem SAF gerði við Samkeppniseftirlitið hinn 1. apríl 2015, s.s. með undirritun yfirlýsingar þess efnis.
Í skilningi samkeppnislaga er litið á samskipti fyrirtækja á vettvangi samtaka fyrirtækja með sambærilegum hætti og öll önnur samskipti. Samskipti á vettvangi samtakanna skulu því aldrei fela í sér tilvísanir til verðs eða upplýsingaskipta um markaði eða viðskiptavini eða annað sem rétt er að leynt skuli fara milli samkeppnisaðila.
Sem hluta af þessari samkeppnisáætlun mun stjórn setja sér samskiptaviðmið sem skulu höfð til hliðsjónar á fundum stjórnar samtakanna sem og fundum ráða og nefnda sem starfa á vettvangi samtakanna.
Við öflun og miðlun upplýsinga á vettvangi samtakanna skal gætt að trúnaði og verklag vera með þeim hætti að komið sé í veg fyrir að viðkvæmar eða sérgreinanlegar upplýsingar einstakra fyrirtækja geti borist í hendur annarra aðildarfyrirtækja eða þriðja aðila.
Við miðlun upplýsinga, hvort heldur er í ræðu eða riti, beint eða óbeint, skal þess gætt að ekki sé miðlað upplýsingum um viðskipti, viðskiptahætti eða markaðshlutdeild einstakra fyrirtækja. Þegar unnið er að rannsóknum á einstökum atvinnugreinum svo og sögulegum upplýsingum um framleiðslu, sölu eða markaðshlutdeild skal þess því ávallt gætt að um sé að ræða samtölur fyrir skilgreinda hópa fyrirtækja og að ekki sé unnt að bera kennsl á upplýsingar einstakra fyrirtækja.
Starfsmönnum samtakanna og fulltrúum félagsmanna sem taka þátt í stjórnum eða nefndum á vegum samtakanna skal standa til boða fræðsla um samkeppnismál í samræmi við fræðsluáætlun samtakanna.
Starfsmönnum samtakanna og fulltrúum félagsmanna sem taka þátt í stjórnum eða nefndum á vegum samtakanna skal jafnframt tryggt aðgengi að sérfræðiráðgjöf komi upp samkeppnisréttarleg álitaefni í tengslum störf þeirra í þágu samtakanna.
Samtökin leggja áherslu á að stuðla að umræðu um mikilvægi samkeppnismála í innra starfi sínu sem og á opinberum vettvangi.
Staðfest af stjórn SAF hinn 23. ágúst 2017
© 2025 SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR. Allur réttur áskilinn.