Framboð til stjórnar 2026: Erna Dís Ingólfsdóttir

Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 19.-26, mars 2026

Erna Dís Ingólfsdóttir

framkvæmdastjóri mannauðs- og sjálfbærnisviðs hjá Íslandshótelum

Ég heiti Erna Dís Ingólfsdóttir og starfa sem framkvæmdastjóri mannauðs- og sjálfbærnisviðs hjá Íslandshótelum, stærstu hótelkeðju landsins, sem rekur 17 hótel og veitingastaði um allt land. Í starfi mínu leiði ég stefnumótun og þróun á sviði mannauðs- og sjálfbærni, ber ábyrgð á vottunum og umbótaverkefnum og vinn að áframhaldandi þróun félagsins og menningar þess.

Ég hef starfað í ferðaþjónustu í yfir tvo áratugi og vaxið með greininni á stærstu umbreytingarskeiðum hennar. Sú reynsla hefur gefið mér mikla innsýn í rekstur, mannauð og þróun greinarinnar. Ferðaþjónustan hefur verið mín ástríða alla tíð og ég brenn fyrir því að hún vaxi áfram á sterkum, heilbrigðum og sjálfbærum grunni til hagsbóta fyrir alla hagsmunaaðila.

Ég hef setið í stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar frá árinu 2024 og kynnst þar vel mikilvægu hlutverki samtakanna í að tala fyrir hagsmunum greinarinnar.

Ég er með B.A. í hönnun og markaðsfræði frá Accademia Italiana og University of Wales, Advanced Diploma í ítölsku og meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.

Erna Dís Ingólfsdóttir

Hvaða reynslu af störfum í ferðaþjónustu eða SAF kemur þú með inn í stjórnina?

Reynsla mín í ferðaþjónustu spannar yfir tvo áratugi og hófst þegar ég fékk mitt fyrsta starf í eldhúsi á veitingastað aðeins 14 ára gömul. Síðan þá hef ég starfað í fjölbreyttum hlutverkum innan greinarinnar – bæði á landsbyggðinni og í höfuðborginni, sem og erlendis – og fengið að kynnast rekstri ferðaþjónustu frá mörgum hliðum.

Síðastliðin 8 ár hef ég starfað í framkvæmdastjórn Íslandshótela þar sem ég leiði mannauðs- og sjálfbærnisvið félagsins og vinn að stefnumótun, þróun mannauðs og sjálfbærni.

Ég hef jafnframt starfað mikið í vinnumarkaðsmálum og kjarasamningum í gegnum árin og tekið þátt í ráðgjafar- og faghópum Samtaka atvinnulífsins sem snúa að vinnumarkaði. Sú reynsla er sérstaklega mikilvæg á tímum þar sem þróun kjarasamninga og stöðugleiki á vinnumarkaði hafa veruleg áhrif á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar.

Ég hef setið í stjórn SAF frá árinu 2024 og í gegnum það starf fengið enn betri innsýn í þau verkefni og þær áskoranir sem greinin stendur frammi fyrir.

Ég tel að þessi samsetning reynslu – úr rekstri, vinnumarkaðsmálum, sjálfbærni og starfi innan SAF og SA – gefi mér sterka yfirsýn yfir þau verkefni sem ferðaþjónustan stendur frammi fyrir á næstu árum.

Hvað eru Samtök ferðaþjónustunnar fyrir þér? Hvernig metur þú stöðu þeirra í dag?

Samtök ferðaþjónustunnar eru fyrir mér lykilvettvangur þar sem greinin sameinar rödd í samtali við stjórnvöld og samfélagið. Þau gegna mikilvægu hlutverki í að tala fyrir hagsmunum ferðaþjónustunnar og móta stefnu um framtíð einnar stærstu atvinnugreinar landsins.

Ferðaþjónustan stendur nú frammi fyrir nýjum áskorunum svo sem harðari samkeppni á alþjóðamörkuðum, breyttum efnahagsaðstæðum og auknum kröfum um sjálfbærni. Í því umhverfi er hlutverk SAF mikilvægara en nokkru sinni fyrr.

Að mínu mati þurfa samtökin áfram að vera öflugur málsvari greinarinnar, með skýra sýn og styrk til að standa vörð um hagsmuni hennar gagnvart mikilvægum málum á borð við samkeppnishæfni greinarinnar, kjarasamninga, skattlagningu og rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar, á sama tíma og þau þróast í takt við breytt landslag greinarinnar og alþjóðlegt umhverfi hennar.

Hvað leggur þú höfuðáherslu á í starfi samtakanna? Er eitthvað sem þér finnst mikilvægt að bæta eða breyta?

Ferðaþjónustan stendur á tímamótum og á næstu árum tel ég sérstaklega mikilvægt að Samtök ferðaþjónustunnar beiti sér af krafti í nokkrum lykilmálum:

Samkeppnishæfni Íslands – að rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar sé stöðugt og að Ísland haldi sterkri stöðu sinni sem eftirsóttur áfangastaður í síharðnandi alþjóðlegri samkeppni.

Stöðugleika á vinnumarkaði – ferðaþjónustan er ein stærsta útflutningsgrein landsins og einkennist jafnframt af miklum árstíðarsveiflum, þar sem mikilvægt er að vinnumarkaðurinn styðji við sveigjanleika og sjálfbært rekstrarumhverfi til lengri tíma. Sjálf hef ég áratuga reynslu af vinnumarkaðs- og kjaramálum og tel að sú reynsla geti nýst vel í starfi stjórnar SAF á næstu misserum.

Sterkum flugtengingum og öflugri markaðssetningu Íslands – ferðaþjónustan er flugdrifin atvinnugrein og samkeppnin um ferðamenn eykst stöðugt.

Sjálfbærri þróunar greinarinnar – uppbygging innviða, vernd náttúrunnar og áframhaldandi þróun á ábyrgri og sjálfbærri ferðaþjónustu.

Viðnámsþróttur gagnvart alþjóðlegum sveiflum – ferðaþjónustan er viðkvæm fyrir breytingum í alþjóðlegu efnahagsumhverfi. Mikilvægt er að greinin hafi styrk til að takast á við efnahagssveiflur, gjaldmiðlabreytingar og geopólitíska þróun sem getur haft bein áhrif á ferðavilja.

Ég tel að nú þurfi skýra sýn, sterka rödd og framsækna hugsun til að tryggja að ferðaþjónustan, ein af grunnstoðum íslensks hagkerfis, hafi rekstrarumhverfi sem styður áfram við vöxt og stöðugleika til framtíðar.

Allir frambjóðendur til stjórnar SAF 2025: