Rafræn atkvæðagreiðsla stendur yfir 19.-26. mars 2026
Ég heiti Ragnhildur Ágústsdóttir, iðulega kölluð Ragga og stundum Lady Lava. Ég er stofnandi og eigandi Lava Show.
Ég hef byggt upp ferðaþjónustufyrirtæki frá grunni með starfsemi í Vík í Mýrdal og Reykjavík og hef því skýra innsýn í rekstur greinarinnar, áskoranir hennar og þau verðmæti sem hún skapar fyrir íslenskt samfélag.
Fyrir mér snýst ferðaþjónusta um að skapa hágæða upplifanir, að fara fram úr væntingum gesta og að byggja upp tækifæri um allt land.
Reynsla mín kemur beint úr rekstri og vinnu á alþjóðlegum markaði, bæði í ferðaþjónustu en einnig í tæknigeiranum.
Ég hef byggt upp fyrirtæki frá grunni og séð hvernig rekstrarumhverfi, pólitík og almenn umræða hafa bein áhrif á ferðaþjónustu.
Ég hef einnig unnið markvisst að því að styrkja ímynd Íslands erlendis, meðal annars í gegnum miðlun á samfélagsmiðlum undir merkjum Lady Lava.
Undanfarin fjögur ár í stjórn SAF hafa staðfest fyrir mér hversu mikilvægt er að rödd greinarinnar sé skýr og sterk.
SAF eru sameiginleg rödd einnar mikilvægustu atvinnugreinar landsins.
Samtökin hafa byggt upp öflugt starf og gegna lykilhlutverki í hagsmunagæslu og samskiptum við stjórnvöld.
En við þurfum að vera enn skýrari og ákveðnari í því að tala fyrir greinina og þeim verðmætum sem hún skapar.
Mitt helsta áherslumál er að styrkja ímynd ferðaþjónustunnar innanlands.
Þrátt fyrir mikilvægi greinarinnar er umræðan oft neikvæð og sú ímynd hefur bein áhrif á almenningsálit, pólitískar ákvarðanir og á endanum rekstrarumhverfi fyrirtækjanna.
Ef við ætlum að ná árangri í hagsmunabaráttu verðum við fyrst að tryggja að samfélagið og forsvarsmenn þjóðarinnar skilji betur mikilvægi greinarinnar og rekstrarumhverfi hennar.
Ég hef talað ötullega fyrir þessu síðustu ár og fagna því að sú vinna sé farin að skila sér, m.a. í nýrri ímyndarherferð sem kynnt verður á næstu dögum.
En það er aðeins byrjunin. Markvisst ímyndarstarf er langtímaverkefni sem þarf að fylgja eftir af festu. Í mínum huga er jákvæð ímynd greinarinnar grunnurinn að öflugri hagsmunabaráttu.
Þess vegna gef ég áfram kost á mér til stjórnarsetu og óska eftir ykkar stuðningi.