Allar upplýsingar um aðalfund SAF á einum stað.
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fer fram fimmtudaginn 26. mars 2026 á Hilton Reykjavík Nordica. Skráning er í fullum gangi og eru félagsmenn í SAF hvattir til að fjölmenna á fundinn!
Á þessari síðu er að finna mikilvægar upplýsingar um dagskrá aðalfundar SAF 2026, kosningar til stjórnar, skráningu á fundinn og praktísk atriði.
Það er mikilvægt að skrá sig til leiks. Smelltu á takkann hér að neðan:
Lokað er fyrir skráningar á þennan viðburð
Fulltrúar aðildarfyrirtækja geta nálgast aðalfundargögn og beina útsendingu frá fundinum hér er nær dregur fundi. Forsvarsfólk aðildarfyrirtækja fær aðgangsorð að gagnasíðunni í tölvupósti.
09.00 – 10.00 Heitt á könnunni og afhending fundargagna
10.00 – 12.00 Faghópafundir
12.00 – 13.00 Hádegisverður á Hilton Reykjavík Nordica
13.00 – 14.00 Samtal um ferðaþjónustu
Pétur Óskarsson formaður SAF stýrir umræðum um ástand og horfur í ferðaþjónustu með áherslu á rekstrarumhverfi greinarinnar.
Þátttakendur í umræðum:
14.00 – 16.00 Aðalfundur SAF
16.30 – 18.00 Netagerð
18.00 Eftirpartý
Félagsmenn í SAF greiða 7.500 kr. fundargjald.
Innifalið í gjaldinu er aðgangur að fundum og veitingar á meðan viðburði stendur.
Í aðdraganda aðalfundar SAF hefur kjörnefnd verið að störfum sem hefur það hlutverk að undirbúa og hafa yfirumsjón með stjórnarkjöri á aðalfundi samtakanna. Kjörnefnd hefur þegar auglýst eftir framboðum til stjórnar SAF fyrir starfsárin 2026 – 2028. Eftir að framboðsfrestur rann út út fimmtudaginn 12. mars sl. höfðu níu einstaklingar gefið kost á sér í stjórn samtakanna en Bragi Skaftason, eigandi Krónikan veitingastaðs, dró framboð sitt til baka.
Eitt framboð barst til formanns stjórnar SAF. Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Katla DMI ehf., er því sjálfkjörinn formaður stjórnar starfsárin 2026-2028.
Frambjóðendur til stjórnar SAF eru eftirtaldir í stafrófsröð:
Samkvæmt lögum SAF skal stjórnarkjöri þannig háttað að annað hvert ár skal kjósa formann og þrjá meðstjórnendur en hitt árið eru hinir þrír meðstjórnendurnir í kjöri. Formaður SAF var kjörinn á aðalfundi SAF árið 2024 og því er nú kjörið um formann og meðstjórnendur. Vakin er athygli á að fyrir liggur lagabreytingartillaga um fjölgun í stjórn SAF og eru félagsmenn hvattir til að kynna sér tillöguna.
Rafræn kosning til stjórnar SAF hefst fimmtudaginn 19. mars og stendur fram yfir kynningu frambjóðenda á aðalfundi samtakanna sem fram fer fimmtudaginn 26. mars á Hilton Reykjavík Nordica.
Sem kunnugt er hefur hver félagsmaður atkvæðamagn á aðalfundi í hlutfalli við greitt félagsgjald í SAF um síðastliðin áramót. Hverjum heilum þúsund krónum greiddra félagsgjalda fylgir eitt atkvæði. Á atkvæðaseðlinum er tiltekið hversu mörg atkvæði fyrirtækið á rétt á í atkvæðagreiðslunni. Forsvarsmenn fyrirtækja í Samtökum ferðaþjónustunnar hafa fengið sendan tölvupóst með upplýsingum um kjörið.
Til að taka þátt í kjörinu smellir þú á tengilinn „Greiða atkvæði“ hér að neðan og þá færist þú yfir á innskráningarsíðu. Eftir auðkenningu er atkvæðaseðillinn aðgengilegur. Athugið að einungis er hægt að kjósa einu sinni.
Könnuður ehf. annast rafrænar kosningar fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar. Öll meðhöndlun gagna tryggir að svör verða aldrei rakin til einstakra kjósenda.
Félagsmönnum sem lenda í vandræðum með að kjósa er bent á að senda tölvupóst á netfangið skapti@saf.is
Á fundi faghópa í tengslum við aðalfund SAF eru kosnar fagnefndir fyrir starfsárið 2026-2027.
Fagnefndirnar eru mikilvægur liður í grasrótarstarfi samtakanna en þar gefst fyrirtækjum færi á að ræða sameiginleg álitamál og úrlausnarefni og stefnumarkandi málefni er varða viðkomandi starfsgreinar innan ferðaþjónustunnar.
Innan SAF starfa átta fagnefndir: afþreyingarnefnd, bílaleigunefnd, ferðaskrifstofunefnd, flugnefnd, gististaðanefnd, hópbifreiðanefnd, veitinganefnd og siglinganefnd.
Öllum félagsmönnum er heimilt að taka þátt í störfum þeirra faghópa sem falla undir hans starfsemi, en við kosningu til hverrar nefndar hefur hvert aðildarfyrirtæki eitt atkvæði. Rétt er að geta þess að einungis er hægt að skila inn framboði í eina fagnefnd og skal framboðið staðfest af forsvarsmanni eða eiganda fyrirtækis.
Félagsmenn, sem óska eftir að taka sæti í fagnefnd, eru beðnir að skila inn framboði fyrir hádegi mánudaginn 23. mars. Framboðum skal skila rafrænt með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
10.00 Samstarf innan svæða: Er hægt að bæta upplifun gesta með slíku samstarfi? // Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
11.00 Skýrsla formanns, almennar umræður, ályktanir og kosning í afþreyingarnefnd
10.00 Kynning á frumvarpi um Innviðafélag // Guðmundur Daði Rúnarsson, sérfræðingur hjá fjármálaráðuneyti
11.00 Skýrsla formanns, almennar umræður, ályktanir og kosning í bílaleigunefnd
10.00 Skýrsla formanns, almennar umræður, ályktanir og kosning í flugnefnd
11.00 Kynning á Masterplani Keflavíkurflugvallar // Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála hjá ISAVIA & Brynjar Vatnsdal, deildarstjóri þróunardeildar ISAVIA
10.00 Veistu ekki hver ég er? Hvað ræður sýnileika í svörum gervigreinar og hvernig er hægt að hafa áhrif á það? // Guðrún Baldvina Sævarsdóttir, sérfræðingur hjá Icelandia
11.00 Skýrsla formanns, almennar umræður, ályktanir og kosning í ferðaskrifstofunefnd
10.00 Isavia: Farþegaþróun og spá fyrir 2026 // Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála hjá ISAVIA
11.00 Skýrsla formanns, almennar umræður, ályktanir og kosning í gististaðanefnd
10.00 Veðurlæsi og vindhviðjuþekja // Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur
11.00 Skýrsla formanns, almennar umræður, ályktanir og kosning í hópbifreiðanefnd
10.00 Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits – kynning á frumvarpi um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir // Erla Arnardóttir, lögfræðingur hjá umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneyti
11.00 Skýrsla formanns, almennar umræður, ályktanir og kosning í veitinganefnd
10.00 Heimsókn í Vör, nýja farþegamiðstöð við Skarfabakka og kynning á starfseminni // Gunnar Tryggvason, Hafnarstjóri Faxaflóahafna
11.00 Skýrsla formanns, almennar umræður, ályktanir og kosning í siglinganefnd
Staðsetning fyrir fundi faghópa verður send út er nær dregur fundi.
Þeir félagsmenn, sem óska eftir að taka sæti í fagnefnd, eru beðnir að skila inn framboði fyrir hádegi mánudaginn 23. mars. Framboðum skal skila rafrænt með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Félagsmönnum SAF bjóðast sérkjör á gistingu hjá Hilton Reykjavík Nordica í tengslum við aðalfund samtakanna. Nánari upplýsingar og bókunarhlekkur hefur verið sendur forsvarsmönnum aðildarfyrirtækja SAF.
Endurskoðaðir ársreikningar Samtaka ferðaþjónustunnar liggja fyrir á skrifstofu samtakanna í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 í Reykjavík, viku fyrir aðalfund.
Tvær tillögur frá stjórn SAF til breytinga á lögum samtakanna liggja fyrir fundinum. Tillögurnar lúta að því að
1) fjölga meðstjórnendum í stjórn SAF úr sex (6) í átta (8) ásamt því að fella á brott ákvæði laga samtakanna um varamenn í stjórn SAF.
2) fjölga fulltrúum í fagnefndum úr 5 í 6 og að kjörtímabil þeirra verði tvö ár.
Tillaga stjórnar um árgjald skv. lögum samtakanna liggur fyrir fundinum. Tillagan lýtur að því að lágmarksárgjald í SAF hækki úr kr. 29.000 í kr. 35.000 og að hámarksárgjald hækki úr 2,5 mkr. í 2.7 mkr. í samræmi við almenna verðlagshækkanir.
Fulltrúar aðildarfyrirtækja geta nálgast aðalfundargögn og beina útsendingu frá fundinum hér. Aðgangsorð að gagnasíðunni hefur verið sent forsvarsfólki aðildarfyrirtækja í tölvupósti.
Allar nánari upplýsingar um aðalfund og fundi faghópa SAF er hægt að fá hjá Skapta Erni Ólafssyni, upplýsingafulltrúa SAF, í gegnum netfangið skapti@saf.is eða í síma 899-2200.